Miðvikudagur 24.11.2010 - 22:21 - Lokað fyrir ummæli

Í nafni Guðs föður, sonar og heilags anda!

Stjórnarskrá Litháen er með uppfærðum mannréttindaákvæðum enda nýleg, frá1992. Ég hef satt að segja ekki kynnst þjóð sem leggur eins mikla áherslu á þjóðerni sitt og uppruna en þeir eru gáfaðri en Íslendingar og gengu í ESB 2004.  Gríska stjórnarskráin er ekki bara í Guðs nafni heldur í nafni föður, sonar og heilags anda.  Síðan er í mörgum greinum lýst yfir hollustu við Grísku Orthodoxu kirkjuna, hástöfum. Vinir mínir í Vantrú hefðu nóg að gera þar og ættu kannski að flytja sig.  Vinur minn grískur  segir litla óeiningu um þetta.  Ríkið þar greiðir prestum Orthodoxa laun án nokkurs jarðasamkomulags. Hjörtur Magni gæti rifið sig þar.

Ég er annars orðinn á móti einstaklingsframboðskosningum. Eftir því sem fleiri vinir mínir biðla til mín sekkur í  mig sektarkenndin yfir því  að þurfa eiginlega að bregðast öllum nema einum.  það munar víst mest um fyrsta sætið og raunar nokkuð um næsti þrjú.  Afbragðafólkið sem ég þekki og er í framboði skiptir hins vegar tugum.  Þess utan eru margir sem ég veit að eru vel gefnir, vel lesnir og bindindissamir.  Á ég að kjósa Hjalta Hugason vegna þess að hann er betur að sér en aðrir um samband og sambúð ríkis og kirkju auk þess að vera með svipaðan mannréttindaskilning og ég  Eða Arnfríði Guðmundsdóttir eða Örn Bárð Jónsson af því að það sama má segja um þau.  Eða á ég að kjósa Sigurð G. Tómasson af því að hann er svo skemmtilegur og gáfaður.  Erling Sigurðarson af því að hann er afburðamaður, Þorstein Gylfason, Pétur Björgvin, Sigurð Grétar pípara af því hann býr í Þorlákshöfn, Árna Kjartansson arkitekt sem er ö’rum rökvísari  eða Valgarð Guðjónsson af því að hann rökræðir við mig á síðunni minni, Soffíu Sigurðardóttur sunnlending,  Gísla Tryggvason eyjumann, Eirík Bergmann eða Friðrik Þór Guðmundsson sem er flottur í svona umræðu.  Og ég gleymi mörgum. Þið sjáið að þetta er ekkert grín.

Ég kem heim á laugardaginn og ætla að kjósa. Kannski leysist þetta ef vélinni seinkar. Annars er ég með tillögu að lausn. Að kjósa þann sem sækir mig til Keflavíkur.  Ekki myndi samviskubitið minnka við það.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (9)

  • Tókstu eftir því Baldur að þú nefndir 2 konur og 12 karla?
    Nei, bara svona ef þú skyldir ekki vera kominn með nóg samviskubit!

    Svo getur þú bætt úr þessarri hlið samviskubitsins með því að velja aðra konuna í 1.val!

    Annars er ég í bjartsýniskasti, finn eins og þú fullt af málefnalegum frambjóðendum og er sannfærð um úr þeim hópi komi hinir endanlegu fulltrúar. Þetta verður gott og gagnlegt stjórnlagaþing.

  • Þorsteinn Gylfason er horfinn yfir landamærin.
    Bróðir hans Þorvaldur er hins vegar í framboði.

  • Baldur Kristjánsson

    Þorvaldur skal hann heita. Önnur konan sem ég vel rífur bara kjaft!! BKv. B

  • Já, það er aldeilis gott að þú getur borið okkur saman við Grikkland.

    Ég er með hugmynd. Af hverju flytur þú ekki þangað?

    Annars legg ég til að þú og kollegar þínir farið fram á að trúfrelsi verði afnumið á Íslandi. Það myndi einfalda málið mikið.

Höfundur