Þriðjudagur 01.02.2011 - 14:19 - Lokað fyrir ummæli

Búrkur og annar sérútbúnaður!

Eitt megineinkenni vestrærænnar menningar er að hver einstaklingur fái að fara sínu fram án þess að það raski um of ró annarra. þannig megi hver og einn klæðast að vild innan striks sem markast af blygðunarsemi þeirra sem komnir eru af léttasta skeiði og aðhafast flest það sem ekki brýtur á frelsi annarra.  Oftar en ekki þurfa mál að fara í tiltekna ferla svo að tryggt sé að svo verði ekki.

Sumir segja að búrka sé dæmi um yfirráðavald og ætti því ekki að líðast.  Ekki er að mínum dómi  til önnur lausn á þessu en opið og frjálst samfélag frjálsra einstaklinga þar sem hver og einn ræður sínum hlutum. Samfélag boða og banna yfirráðastéttar er tæpast svarið við nefndum kvennakúgunarþræði.

Aðrir vilja sjá framaní alla.  Að hver beri fram sitt andlitsauðkenni.  Falleg hugmynd sem ég fell stundum fyrir en samt hugnast mér ekki að fara að setja margbreytileika mannlífsins skorður.  Að hver megi bera það fram sem hann vill með þeim hætti sem hann vill svo lengi sem það setur ekki lífi annarra skorður er sú leið sem mér hugnast best og er því sammála niðurstöðu okkar ágæta innanríkisráðherra.

Evrópuráðið, bæði þingið sjálft og í mynd ECRI er andvígt bönnum hvort sem er á búrkum eða öðrum sérútbúnaði.  Sjálfum finnst mér að það sama eigi að gilda innan veggja skóla og í öðru opinberu rými.  Ef fólk vill vita hverjir þar eru á ferli er hægt að skylda fólk til þess að bera nafnspjöld(e.t.v. með mynd).

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (16)

  • Ósammála þér um búrkur, Baldur. Tel almenningsáleitið vera bæði sterkara og réttara afl í þessu máli en stjórnvöld. Fólk á að berjast gegn notkun á búrkum, en ekki að setja lög sem banna þær. Ég er á móti því að konur klæðist búrkum af því að ég lít á þær sem kúgun á þeim konum sem undir þeim hyljast. Það má vel vera að einhverjar þeirra sömu kvenna líti ekki svo á sjálfar, en það er gamalreynd saga að fólk samþykki margvíslega kúgun og sú kúgun verður ekkert réttmætari við það.

    Fjöldi kvenna var á móti almennum kosningarétti kvenna og svo hefur verið um mörg önnur réttindamál kvenna. Að klæða konu í poka í nafni trúarbragða er bæði kvennakúgun og trúarlegt ofbeldi.

  • Baldur Kristjánsson

    Ég huga að þessari röksemd í annarri málsgrein punkta minna en fellst ekki á ofangreind rök. Almenningsált skiptir mig hins vegar engu. BKv. baldur

  • Afgreiðslumaður

    Mér fyndist frábært ef ég fengi að klæðast lambhúshettu í þjónustuvinnu minni, ég er að hugsa um að gera það. Af hverju þarf fólk eiginlega að sjá andlit mitt?

  • Baldurkr

    Getur fólk ekki farið í aðra búð? (sem það gerir kannski ef þú tekur af þér lambhúshettuna!)Bkv. baldur

Höfundur