Mánudagur 14.03.2011 - 11:30 - Lokað fyrir ummæli

Hvar erum við stödd?

Eftir viku, mánudaginn 21. mars er alþjóðadagur gegn kynþáttafordómum.  Af því tilefni boðar Þjóðmálanefnd Þjóðkirkjunnar til málþings undir yfirskriftinni: Hvar erum við stödd?  Þar munu Toshiki Toma og Baldur Kristjánsson reyna að greina í hve miklum mæli kynþáttafordómar dafna hér á landi og svara því hvað við erum að gera til þess að berjast gegn þeim og hvað við gætum gert.  Toshiki er prestur innflytjenda hér á landi og sá Íslendingur sem hefur látið einna mest til sín taka á þessu sviði. Baldur er sérfræðingur í ECRI (European Commision against Racism and Intolerance) og mun m.a.fjalla um hvað íslenskum stjórnvöldum hefur verið ráðlagt á þessu sviði og hvað þau gætu gert til þess að berjast gegn kynþáttafordómum og misrétti sem  af þeim leiðir. Þá mun Magnús Erlingsson sóknarprestur á Ísafirði segja frá því sem kirkjan er að gera á vestfjörðum til þess að styrkja stöðu minnihlutahópa og einstaklinga innan þess hóps.

Málþingið hefst kl 12 og er í safnaðarheimili Neskirkju eða torginu eins og það er kallað, öllum opið og fólk borgar fyrir salinn með því að kaupa súpu eða kaffi.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (2)

  • Baldur getur þú sagt okkur hve margir fóru frá Íslandi
    á alþjóðalega ráðstefnu um SPILLINGU, sem nú er haldin
    í Mexicoborg? Um hundrað þjóðir senda ÞINGMENN til funar.

    Þurfti kansi ekki að kynna Ísland fyrir „HREINLEIKA“?

  • Gagarýnir

    Kirkjan og trúin voru athvarf blökkumanna í BNA. Þar var mannfyrirlingin viðurstyggileg og svartir sem vildu halda í vonina fundu sig í kirkjum.
    Nú er sem betur fer komið annað ástand og kirkjusókn þess vegna minni.
    Sama á við um sk. vinstri menn. Þeir blómsta í eymd og volæði og láta sig dreyma um nýtt þjóðfélag. En þá eru það bankar enn og aftur.

Höfundur