Fimmtudagur 19.01.2012 - 11:34 - Lokað fyrir ummæli

Baráttan um biskupsstólinn!

Sigríður Guðmarsdóttir og Kristján Valur Ingólfsson hafa nú gefið kost á sér í biskupskjöri. Hvortveggja ákaflega hæfar manneskjur og vel menntaðar sem myndu valda embættinu vel.  Sigríður ætti að höfða til þeirra sem vilja (róttækar) breytingar á kirkju (og samfélagi) að mörgu leyti sömu hópa og vilja nýtt Ísland. Kristján Valur ætti að höfða fremur til þeirra sem vilja yfirvegaðar breytingar, góða kjölfestu og reynslu. Sigríður höfðar, eðli máls samkvæmt, einnig til þeirra sem telja áríðandi að fá konu í stól biskups í öllu falli feminista.  Kristján fremur til þeirra sem vilja líta til hæfileika fremur en kynferðis.  Þarna eru þó ekki skörp skil því að bæði eru jafnréttissinnuð.

Ágætar manneskjur eru með hendina á húninum.  Má þar nefna Sigurð Árna Þórðarson sem stendur alveg á pari við ofannefndar manneskjur í hæfileikum og Jónu Hrönn Bolladóttur sem er prýðilega hæf og  lætur til sín taka hvar sem hún fer og eins og Sigríður ætti að höfða til kvenna og þeirra sem vilja glænýja hugsun.

Það hefur orðið gjörbreyting á biskupskjöri.  Áður voru þetta rúmlega 200 manns aðallega prestar. Nú eru þetta yfir 500 manns að uppistöðu til sóknarnefndarformenn. Sóknarnefndarmenn eru með allt öðru vísi bakgrunn en prestar.  Þetta eru praktískir birnir og birnur sem hafa fyrst og fremst áhyggjur af fjárhag sókna sinna.  Á meðan afstaða presta mótast af margflóknum kenninga, kunningja -, aldurs (m.a. því hvort að menn hafa verið saman í deild)-  og ættartengslum þá er hið nýja ráðandi afl líklegt til að stjórnast meira af almenningsáliti og flokkapólitík.  Þegar hygg ég að það ferli sé hafið að sóknarnefndarformenn fundi með hver öðrum og þeir sterkustu þeirra á meðal beiti áhrifum sínum eins og í öllu mannlegu félagi.  Þarna mun ekki eiga sér stað samráð á sóknargrunni milli prests og sóknarnefndarformanns þar sem presturinn leggur dóm á kenningarlega þáttinn heldur munu leikmenn leita hvorn annann uppi og í raun og veru ráða niðurstöðu. Í þessu umhverfi er vissulega er gott að vera kvenframbjóðandi þar sem sterk krafan er sú að kona verði biskup en það verður líka gott að vera yfirvegaður reynslubolti.  Líklegt er að frambjóðendur hagi sér meira og minna eins og pólitíkusar á næstu vikum, reyni að höfða til sem flestra og verði því varkárir og yfirvegaðir en jafnframt róttækir og spennandi.  Og nú reynir á hver hefur besta biskupsnefið.

Og það getur skipt máli fyrir íslenskt samfélag hver verður biskup. Þetta er í öllu falli áhrifastaða.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (21)

  • Þetta er bara það sama og ég lagði upp með, Frikki minn sæll. Jesús var til. Var hann guðdómlegur og hafði á að skipa himneskum herskörum? Ég hef ekki sagt orð um það.

  • @Þorsteinn: ,,Sannast sagna, Nonni, þá er miklu auðveldara að efast um að þú sért til en Sesar.“

    Það er nú aldeilis umdeilanlegt, Steini minn. Sesar var neblega gerður að guði allnokkru á undan Kristi og mætti efast um jarðvist hans þess vegna.

    Hinsvegar efast enginn um jarðbundna tilvist mína, enn sem komið er.

  • Hulda Guðmundsdóttir

    Sæll Baldur – ég verð að fá að gagnrýna alhæfingu þína um leikmenn (sóknarnefndarformenn). Þú segir:

    ,,Þetta eru praktískir birnir og birnur sem hafa fyrst og fremst áhyggjur af fjárhag sókna sinna.“

    Ég gæti sagt um presta: Þeir eru yfirleitt uppteknastir af þvi að fá greitt fyrir aukaverk og hlunnindi… Þætti þér þetta notaleg einkunn?

    Bæði leikir og lærðir eru mjög mismunandi praktískir – og hafa mismunandi sýn á hlutverk kirkjunnar þjóna, hvort sem þeir eru leikir eða lærðir.

    Svo er annað sem þú nefnir: ,,Þegar hygg ég að það ferli sé hafið að sóknarnefndarformenn fundi með hver öðrum og þeir sterkustu þeirra á meðal beiti áhrifum sínum eins og í öllu mannlegu félagi. Þarna mun ekki eiga sér stað samráð á sóknargrunni milli prests og sóknarnefndarformanns þar sem presturinn leggur dóm á kenningarlega þáttinn heldur munu leikmenn leita hvorn annann uppi og í raun og veru ráða niðurstöðu.“

    Nú vill svo til að ég tók mig til og sendi öllum sóknarnefndarformönnum (sem hafa netfang) tölvupóst. Tilgangurinn er að vekja til vitundar um nýfenginn kosningarétt og sömuleiðis að við ræðum um hvaða mál við viljum bera fram í spurningaformi við kandidata. Það eru málefni kirkjunnar sem ég beiti mér fyrir að leikmenn velti fyrir sér. Margir hafa hvorki setið á kirkjuþingi eða fengið uppfræðslu í kirkjunnar málum svo við sem höfum sett okkur inn í hin ýmsu mál og kirkjurétt, ættum að miðla hinum. Það er mín skoðun. Ég hef hins vegar engan áhuga á að ,,ráða niðurstöðu“ – við skulum bara biðja og vona að hinn hæfasti kandidat muni taka við þjónshlutverkinu mikla – og þekkja sinn vitrunartima!

  • Baldur Kristjánsson

    Þú þarft ekkert leyfi. Ég sé þettavsvona þú hinsegin en talsmáti þinn um presta er athygisverður? eg er bara að segja það sem liggur í augum uppi að sóknarnefndarformenn eru eðli máls samkvæmt jafnaðarlega praktískari en prestar enda hlutverk þeirra að halda utan um veraldlegan búnað sókarinnar meðan prestar sjá um andlegu hliðina. Í þessu felast engir fordómar bara rökvísi.
    Fleirri en ég ótrast þá þróun að leikmenn fundi sér og prestar sér hvort sem im er að ræða kirkjuþingsmenn eða kjörmenn.
    En fordómar þínir í garð presta eru athyglisverðir

Höfundur