Í dag eru rétt þrjú ár síðan ég setti fyrstu færsluna á þennan vef. Þegar ég var beðinn um þetta, féllst ég á að prófa í svona þrjá mánuði og sjá svo til með framhaldið. Ég fann strax að það var eftirspurn eftir svona skrifum og þeim var vel tekið. Ég hafði óskaplega lítið […]
Það er ánægjulegt að verða þess var að alþingirmenn bregðist við almennum umræðum um bygginga og skipulagsmál með þeim hætti sem nú hefur gerst. Ég hvet alla sem láta sig skipulag eldri hverfa varða að lesa eftirfarandi texta sem barst síðunni: Í nýju frumvarpi á alþingi er lagt til að „sögulegri byggð“ í borg […]
Tímarítið Arkitektúr er komið út glæsilegt að venju. Allur frágangur og málfar er til fyrirmyndar. Í kynningu Arkitektafélagsins er síðasta tölublað kynnt með eftirfarandi hætti: ARKITEKTÚR – tímarit um umhverfishönnun, 1. tölublað 2012 er komið út. Útgefandi er Arkitektafélag Íslands og Félag landslagsarkitekta, Ritstjóri er Bjarki Gunnar Halldórsson FAÍ. Í ritnefnd eru Kristín Þorleifsdóttir […]
Ég má til með að kynna hér lítillega dönsku teiknistofuna Vandkunsten. Hún var stofnuð í sambandi við einhverja stærstu samkeppni sem haldin hefur verið í Danmörku fyrr og síðar. Það var samkeppni SBI um lága þétta byggð. Keppnin var gríðarlega vel undirbúin og tók á öllu sem varðaði búsetu fólks frá nánast öllum hugsanlegum sjónarmiðum. […]
Því var haldið fram í gamla daga á Akademíunni í Kaupmannahöfn að maður gæti ekki orðið almilegur arkitekt nema að hafa „gengið suður“, til Rómar. Auðvitað gerðu það flestir. Rómaborg var álitinn heppilegur staður til þess að læra að lesa anda staðanna. Það var einkum vegna þess að borgin er gömul og sagan […]
Síðdegis á morgun verður haldinn kynningafundur um ný deiliskipulög á svokölluðum Brynjreit og Hljómalindarreit í miðborg Reykjavíkur. Þetta eru mikilvægir staðir í hjarta borgarinnar. Reitirnir liggja báðir að Laugavegi og samanlagt eru þeir um fjórðungur lengdar Laugarvegar frá Bankastræti inn að Snorrabraut. Það er ánægjulegt að vera vitni að því að byrjað […]
Ég rakst á vef sem fjallar er um andrík skrifstofurými þar sem samvinna og upplysingaflæði milli starfsmanna er í lykilatriði. Þegar horft er á myndirnar sér maður nokkuð rökrétta þróun skrifstofuhúsnæðis frá þeim tíma þegar allir voru lokaðir af inni á sinni skrifstofu yfir í opna skrifstofurýmið og hingað. Þar var oftast of lítið […]
Í rammaskipulaginu sem kynnt var í borgarráði í fyrradag komu fram nokkur atriði sem hafa áhrif á nálgunina og lausnina. Í fyrsta lagi er það sögulegt samhengi hlutanna sem hafa afgerandi áhrif eins og lesa má um í síðustu færslu og í öðru lagi óskin um að tengja höfnina betur miðborginni og blása meira […]
Það eru margir góðir hlutir að gerast í skipulagsmálum í Reykjavík þessi misserin. Ég nefni aðra áherslur en ríkt hefur í samgöngum, þéttingaráform við Þverholt, studentagarðar við Sæmundargötu og uppbyggingu við Ingólfstorg. Merkilegasta skipulagið sem nú er til umfjöllunar var kynnt í borgarráði fyrr í dag. Það er rammaskipulag fyrir hafnarsvæðið sem kynnt var […]
Arna Mathiesen arkitekt sem starfað hefur erlendis hefur hvatt sér hljóðs í umræðu hér á landi um skipulagsmál í stóru samhengi. Hún hefur fjallað um skipulagsmál í aðdraganda hrunsins og velt fyrir sér hvar ábyrgðin liggur og hver ætli að axla hana. Nú leggur hún enn í hann með alþjóðlega vinnusmiðju og málstofu […]