Miðvikudagur 08.09.2010 - 19:38 - Lokað fyrir ummæli

Flottir Hvergerðingar og kyrrstæðir sunnlendingar!

Hvergerðingar hafa eignast fínan bæjarstjóra svona holdgerfing plássins.  Hveragerði og Aldís Hafsteinsdóttir renna saman í eitt í vitund manns. Og nú hafa Hvergerðingar gert það sem ég vildi að Ölfusingar gerðu:  fara fram á viðræður um að fá hitaveituna aftur en Ölfusingar eins og Hvergerðingar glöptust á að selja auðlind sína til Orkuveitu Reykajvíkur á þeim tíma fyrir hrun þegar fínt þótti að selja allar eigur almennings.  Hvergerðingar flottir, en auðvitað eiga Ölfusingar og Hveragerði að sameinast.  Það er makalaust með þessa sunnlendinga hvað þeir eru kyrrstæðir.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (1)

  • Já það er skrýtið þegar heita vatnið rennur nánast sjálfkrafa inn í húsin að selja frá sér þessu miklu hlunnindi. Hvergerðingar geta engum nema sjálfum sér um kennt. Því miður.

Höfundur