Laugardagur 11.09.2010 - 23:50 - Lokað fyrir ummæli

Getur maður þjónað tveimur herrum?

Guðspjall dagsins þarfnast ekki skýringa.  Það er holl lesning fyrir þá sem reyna að þjóna tveimur herrum og einnig fyrir þá sem hafa áhyggjur af morgundeginum.  Því miður eru það of margir bæði hérlendis en miklu fremur um víða veröld.

,,Enginn getur þjónað tveimur herrum. Annaðhvort hatar hann annan og elskar hinn eða þýðist annan og afrækir hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammón. Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufull um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. Er lífið ekki meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin? Lítið til fugla himinsins. Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér ekki miklu fremri þeim? Og hver yðar getur með áhyggjum aukið einni spönn við aldur sinn? Og hví eruð þér áhyggjufull um klæðnað? Hyggið að liljum vallarins, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna. En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra. Fyrst Guð skrýðir svo gras vallarins sem í dag stendur en á morgun verður í ofn kastað, skyldi hann þá ekki miklu fremur klæða yður, þér trúlítil! Segið því ekki áhyggjufull: Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? Hverju eigum vér að klæðast? Allt þetta stunda heiðingjarnir og yðar himneski faðir veit að þér þarfnist alls þessa. En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki. Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning.“

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (4)

  • Víst var ég ónytjungur
    í átján löng ár
    og ég eyddi hverjum eyri
    ef ekki í ölkrús, þá í tár

    og ég kom oft á krána
    og kátt var þar um hríð.
    En örlögin þau eru og voru og eru
    mér aldrei neitt sérstaklega blíð.

    Ég fór oft g fékk mér
    fleiri en einn og tvo.
    Og konurnar þær komu,
    þær komu sko og fóru svo.

    Guð blessi þeirra blíðu
    og bros hvert heitt og eitt,
    ef ég dey ekki úr drykkju
    þá dey ég ekki neitt.

    Gef mér soðning þá mig svengir
    og sopa ef þyrstur er,
    nú ef krúkk er eins og krónu
    og Krist sjálfan ef það fer ver.

    Þetta allt saman það er ekkert
    þegar öllu er á botninn hvolft,
    flaskan barasta brotin
    og búið mitt stolt.

    Víst var ég ónytjungur…..

  • Góður Brandur. Kv. B

  • Eins og öll góð spakmæli nær örugglega rangt, við þjónum öll mörgum herrum.

  • Eins og öll góð spakmæli

    er þetta skáldleg líking

    og örugglega rétt.

Höfundur