Í gær var mér hent út í yztu myrkur. Daginn áður opnaði ég tölvuskeyti frá að því er virtist tveimur kærum vinum og hleypti þar með ógeðslegum ormi inn í tölvuna mína sem samstundis sendi á vinalista minn í Facebook tilvísun á Youtube með orðunum: Ert þetta Þú? Kvöldið fór í það að útskýra og afsaka þetta ónæði í mínu nafni og tóku mér allir vel. Nokkrir hringdu og vinskapur jafnvel endurnýjaðist.
Nú bregður svo við að síðunni minni er lokað. Henni er eytt með öllum vinalistanum. Mér meinaður aðgangur. Ég facebook tröllið með 300 vini er ekki til. Varpað út í ystu myrkur. Fékk smá dauðatilfinningu. Hvað er hún Halla í Ásum að aðhafast? Hvaða ritningarlestri er Solveig Lára að veifa í dag? Hvar eru hin brosandi andlit Árna Svans og Kristínar Þórunnar, eitursnjöllkomment Hafsteinsog Gunnars Þórs? Já, hvar eru börnin mín, ættmenn, sveitungar, Dalamenn, Hornfirðingar. Saknaðatilfinningin nísti inn að beini og nístir enn.
Ég fór á einhvern facebook link þar sem stóð hryssingslega á ensku: veistu af hverju var lokað á þig? Þar skildist mér að ég hefði að verið að dreifa spami sem eru einhvers konar óhreinindi. Ég reyndi að verjast en fékk engin viðbrögð. Ég var greinilega að tala við einhverjar vélar. Mér leið eins og sovéskum andófsmanni gagnvart stjórnvöldum. Mér leið eins og Sjálfstæðismanni sem hafði talað illa um Davíð: Ekki virtur viðlits.
Ég er sem sagt dæmdur og tekinn af lífi saklaus. Engin vörn leyfð. Enginn málskotsréttur. Engin mannréttindi virt.
Sem betur fer er ég sá sem ég er og lifi þetta af. Þetta jafnvel auðveldar mér að setja mig í spor hins útskúfaða, en af því hef ég vinnu. En ég set mig í spor unglings eða uppburðalítillar manneskju og ég sé í hendi mér að þetta getur fólk upplifað sem höfnun og verið mikill áfall.
Þess vegna segi ég. Bindum ekki trúss okkar við Sovét netheima. Þar eins og á öllum öðrum sviðum eigum við rétt á að komið sé fram við okkur eins og persónur af holdi og blóði, að mannréttindi sé virt, enginn sé dæmdur saklaus a.m.k. ekki án réttarhalda. Ég mun halda áfram að byggja upp mitt vinanet með heimsóknum og símaviðtölum og á Eyjunni, það er verst hvað margir eru viðskotaillir við mann þar. Það voru allir svo góðir á Facebook. Þannig man ég hana. Þannig er um það sem farið er. Vinir sendið mér línu. Skiljið mig ekki einan eftir hér út í yztu myrkrum.
Eftirskrift: Því miður þá var ég ekki í framboði til Stjórnlagaþings. Þá hefði ég getað talað um pólitískar ofsóknir og jafnvel komist á stjórnlagaþing sem fórnarlamb.
Allt sem er á Snjáldurskinnu fer í gegn um síurnar hjá NSA (National Security Agency) þar sem tölvur leita að ákveðnum orðum sem hægt er að tengja við hryðjuverk að mati USA.
Prófaðu að stofna nýjan aðgang og setja inn orðin Osama, Usama, Bin Laden og Al Kaída o.s.frv. Reyndu svo að fá vegabréfsáritun til Bandaríkjanna.
Æ, æ dapurlegt að sjá þetta. En hugleiddu andartak þetta:
“ sífelt dekur við dauða hluti, e r dulbúið sálarmorð“
Ekki úr vegi að glugga í EINAR BEN td 10-15 mín daglega.
Kveðja JÁH
Excommunication hjá hinu nýja kennivaldi.
Sem betur ferð þarftu ekki að ganga á milli kirkna í Róm.
Bara að snúa á vélar þeirra.
Linux mint gérir allt sem géra þarf í heimilistölvu. Kostar ekkert og engir vírusar