Fyrir Alþingi liggur nú þingsályktunartillaga um staðgöngumæðrun. Flestir umsagnaraðilar eru sammála um að slík mæðrun sé ekki mjðg heppilegt fyrirbrigði. Hér er slóð að áliti Þjóðmálanefndar Þjóðkirkjunnar en hún er samin af undirrituðum, Sóveigu Önnu Bóasdóttur og Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Niðurstaðan er sú að staðgöngumæðrun sé siðferðilega hæpin og samrýmist ekki mannréttindasjónarmiðum. http://www.althingi.is/pdf/umsogn.php4?lthing=139&malnr=310&dbnr=1411&nefnd=h
Sé ekki mikinn mun, á því að gefa líffæri úr sér t.d. nýra, til hjálpar þeim sem er nýrnaveikur. Og því að kona láni líkama sinn til meðgöngu í 9 mánuð til hjálpar þeim sem þrá að eignast barn. Því miður sé ég ekki mikinn mun á þessu tvennu.
verð að taka undir með S. Þórarins. Við getum sett rökin upp svona sem menn nota gegn staðgöngumæðrur með öðrum formerkjum:
„hafa sjúklingar einhvern sjálfsagðan rétt til líffæra annarra en þeirra sem þeir fengu við fæðingu?“
eða hafa sjúklingar rétt á blóðgjöf?
stjórnmálamenn eru alltaf komnir á hálan ís þegar þeir tala um siðferði. Siðferði er ekki algilt og getur á engan hátt verið mælikvarði í samfélaginu. í augum múslima erum við siðlaus fyrir að éta svínakjöt, ættum við ekki að banna þá slíkt vegna hinna hæpnu siðferðislegu raka sem leyfa svínakjöts át?
Strákar, þið getið ekki verið svona vitlausir.
Fólk hefur einmitt ekki RÉTT á líffærum. Þessvegna eru líffæri annarsvegar tekin úr dánu fólki sem hafði gefið fyrir því leyfi fyrirfram og með fullum vilja, eða nánir ættingjar gefa líffæri sem þeir eiga tvö af.
Og það er n.b. að ég held bannað að selja úr sér líffærin, eða allavega kaupa þau.
Eins er með blóðgjafir. Þetta er einfaldlega ekki spurning um rétt. Ef það er til blóð þá fá þeir það sem þurfa. Ef ekki er til blóð er fólk beðið um að gefa það. Engum nema strákum sem nenna ekki að setja í spor annarra dettur í hug að leggja slíkt að jöfnu við að ganga með barn, vitandi það að það er „eign“ annars.
Og að segja að stjórnmálamenn séu komnir út á hálan ís við að tala um siðferði er í sjálfu sér rétt. Þar eru ALLIR á hálum ís. Ekki síst þeir sem eru alveg vissir um að siðferði sé afstætt.
S. Þórarins, af hverju í ósköpunum ætti t.d. fátæk indversk kona að ganga með barn í 9 mánuði með öllu sem því fylgir? Bara til að hjálpa ríkum vesturlandabúum? Trúir því einhver?!