Fimmtudagur 26.05.2011 - 11:45 - Lokað fyrir ummæli

Hvað er í gangi hjá Fram fótboltafélagi?

Allt frá því að pabbi minn sagði mér að halda með Val þegar ég var fimm ára á Melavellinum hef ég haft taugar til Fram. Ég var reyndar í Val lengi vel vegna  búsetu en skipti formlega yfir uppúr  þrítugu og lagði Fram m.a. til ágætis leikmann upp í gegnum alla yngri flokkana.  Fram er hvorki pempíulegt KFUM lið eða auðvaldslið úr Vesturbænum heldur lið harðgerra stáka sem ólust upp á hörðum malarvellinum undir Sjómannaskólanum og lærðu m.a. fyrir tilstilli Ásgeirs heitins Elíassonar að spila skemmtilegan samspilsfótbolta og áttu í áraraðir brillíant lið og brillíant yngri flokka.  En hvað er nú að ske?  Með einni eða tveimur undantekningum höfum við legið við botninn á Úrvalsdeildinni síðastliðin tíu ár. Þegar best hefur gengið höfum við átt miðlungsúrvalsdeildarlið sem spilar engan sérstakan bolta og virðist ekki byggja á neinum sérstökum kjarna? Af hverju erum við ekki meðal þeirra allra bestu?  Af hverju er Framliðið ekki uppfullt af hæfileikaríkum strákum uppöldum í Safamýrinni sem láta boltann renna á milli sín í grasinu þangað til léttleikandi framherjinn sendir hann framhjá markverði andstæðinganna í netið og maður stekkur upp úr sæti sínum af einskærum fögnuði?  Okkar besti maður kemur úr Þorlákshöfn af öllum stöðum.  Eigum við svona fáa unga menn?  Erum við svona fátækir? Hvað er í gangi. Þetta verður að lagast áður en menn eins og ég ánetjast Breiðabliksliðinu sem spilar einfaldlega langskemmtilegasta boltann. Og við höfðum Ólaf Kristjánsson þjálfara þeirra eitt sumar og meira að segja hann gat ekki lappað upp á þetta Framlið. Ég er alveg að gefast upp.  Mér  líður eins og Liverpoolaðdáenda en það er ég sem betur fer ekki.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (6)

  • Ljótt er ef við heiðingjarnir erum farnir að þurfa að taka að okkur að kenna prestunum um mátt trúarinnar…

    Um Framarana er það að segja að þótt byrjunin hafi ekki verið að vonum, þá hefur liðið nú þrjú síðustu árin lent í 3-5 sæti yfir bestu félög Íslands, sem er nú harlagott. Liðið er skipað fleiri heimaöldum strákum en flestöll síðustu 15 árin, t.d. er efnilegasti íslenski markvörðurinn milli stanganna – gallharður Framari í húð og hár.

    Jafnframt er Fram farið að tefla fram kvennaliði sem tekur stórstígum framförum, en á gullaldartímanum á níunda áratugnum hirtum við lítið um slíkt… Batnandi mönnum er best að lifa.

    Það er því margt jákvætt í gangi hjá Fram, sem er í fyrsta sinn í óratíma komið á topp-10 listann yfir þau íþróttafélög á Íslandi sem hafa flesta iðkendur. Á þeim lista eru hvorki KR né Valur.

  • Ég legg reyndar til gódan leikmann í kvennalidid og er stoltur af. En Stefán: ,,Mikil er trú thín“. Gott.

Höfundur