Miðvikudagur 23.11.2011 - 13:27 - Lokað fyrir ummæli

Sjálfstæðismenn stíga í kristsvænginn!

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins tekur ákveðna afstöðu með þjóðkirkjunni og hinum kristnu gildum eins og það er orðað.  Á sama tíma eru settar stífar reglur í boði Samfylkingar og Besta flokksins um aðgengi  trúfélaga item þjóðkirkju að skólum Reykjavíkurborgar. Svo langt er gengið að banna dreifingu á höfuðriti Vestrænnar menningar Nýja Testamentinu í skólum borgarinnar.  Á landsfundi Vinstri Grænna  komu fram tilögur sem ekki voru beinlínis hliðhollar kirkju og prestum.  Þetta er óheillaþróun.  Við erum að fá hér upp kristið hægri og trúlaust vinstri. Vinstri mönnum skal bent á þeir sem fjalla um mismunun hjá Evrópuráðinu hafa ekki séð ástæðu til að amast við þjóðkirkjufyrirkomulaginu á Norðurlöndunum, telja þetta menningarlegt og félagslegt fyrirkomulag sem eigi sér djúpar rætur í samfélögunum og hafi gefist vel en þurfi að sjálfsögðu að aðlaga sig kröfum nútímans um jafnræði og hlutleysi.  það ættum við að geta gert í sameiningu án allra öfga.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (18)

  • Æi Baldur, þetta er orðið alveg óskaplega klént hjá þér. Hvað með það þó að þeir sem fjalla um þetta hjá Evrópuráðinu hafi ekki séð ástæðu til að amast við þessu augljósa misrétti sem hér ríkir – þarf vegsemdin alltaf að koma að utan?

    Það er ekkert óeðlilegt við það að stoppa trúboð Gídeon í grunnskólum. Það er fullkomlega eðlilegt og nákvæmlega engar öfgar fólgnar í því að stoppa slíkt.

    Það eru „öfgar“ fólgnar í því misrétti sem ríkir í þessum málum á Íslandi. Það er „hógvært“ að berjast fyrir jafnrétti.

  • Sammála Baldri um þetta.

    Hægri menn eru að auki að flytja inn öfgatrúarbrögð í tengslum við kapítalismatrú sína, eins og kom fram í bandarískri bók um Jesús, græðgi og kapítalisma sem öfgafullir frjálshyggjumenn létu þýða og gefa a.m.k. 1000 eintaök af henni. Þeir eru að útbreiða hugarfar hægri öfgamanna í Bandaríkjunum hér á landi.

    Það er ógnvekjandi þróun.

  • Dofri Hermannsson

    Það er ákveðið harmoní á milli bókstafstrúar og öfga hægri annars vegar og gagnrýnnar hugsunar, trúleysis og vinstri skoðana hins vegar. Margir hægri flokkar hafa brugðið á það ráð að sópa upp til sín fólki sem er afturhaldssamt, hrætt við breytingar, útlendinga og samkynhneigða en trúin er þar einmitt í hlutverki fægiskóflu og sóps. Að ala á þessu er stórskaðlegt hverju samfélagi.

    Þjóðkirkjan á Íslandi getur sjálfri sér um kennt að þurfa nú að sætta sig við að vera í sömu stöðu og önnur trúfélög, kristin sem ókristin. Hún hefur verið áskrifandi að íslenskum sálum og haft ótrúlegt leyfi til að tvinna markaðsstarf sitt saman við grunnskólanámið.

    T.d. hefur það tíðkast að kirkjan framlengi skólaferðalög og noti viðbótina sem fermingarfræðslu. Þú getur ímyndað þér hvernig staða það er fyrir börn að vera send heim úr skólaferðalaginu af því þau eru ekki að fara að fermast. Athugasemdum við þetta hefur verið tekið illa, rétt eins og kvenréttindi hafa verið torsótt og réttindabarátta samkynhneigðra ítrekað verið „hent á haugana“ svo vísað sé til orða biskupsins.

    Þjóðkirkjan þarf að líta í eigin barm rétt eins og Sjálfsstæðisflokkurinn. Guð forði þeim frá því að finna hvort annað á undan til að forða sér frá nauðsynlegri sjálfsskoðun.

  • Hannes I. Hallgrímsson

    Dofri;
    Hræsni vinstrimanna í trúmálum er náttúrulega sá að á sama tíma og þeir lýsa yfir trúleysi og jafnvel andúð á trúarbrögðum, þá knéfalla þeir fyrir íslamstrú, sérstaklega bókstafstrúar íslam, og greiða götu slíkra trúarbragða í nafni mannréttinda.

    Gott dæmi um þetta er að bjóða múslímum hér á landi lóð undir mosku á besta stað í borginni sem þar að auki er mjög sýnilegur.

    Slík moska er stórt og áberandi kennileiti á höfuðborg allra landsmanna og lýsir best hræsni vinstrimanna til trúmála á sama tíma og kristni er gerð útlæg úr stofnunum borgarinnar í nafni mannréttinda.

Höfundur