Miðvikudagur 23.11.2011 - 13:27 - Lokað fyrir ummæli

Sjálfstæðismenn stíga í kristsvænginn!

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins tekur ákveðna afstöðu með þjóðkirkjunni og hinum kristnu gildum eins og það er orðað.  Á sama tíma eru settar stífar reglur í boði Samfylkingar og Besta flokksins um aðgengi  trúfélaga item þjóðkirkju að skólum Reykjavíkurborgar. Svo langt er gengið að banna dreifingu á höfuðriti Vestrænnar menningar Nýja Testamentinu í skólum borgarinnar.  Á landsfundi Vinstri Grænna  komu fram tilögur sem ekki voru beinlínis hliðhollar kirkju og prestum.  Þetta er óheillaþróun.  Við erum að fá hér upp kristið hægri og trúlaust vinstri. Vinstri mönnum skal bent á þeir sem fjalla um mismunun hjá Evrópuráðinu hafa ekki séð ástæðu til að amast við þjóðkirkjufyrirkomulaginu á Norðurlöndunum, telja þetta menningarlegt og félagslegt fyrirkomulag sem eigi sér djúpar rætur í samfélögunum og hafi gefist vel en þurfi að sjálfsögðu að aðlaga sig kröfum nútímans um jafnræði og hlutleysi.  það ættum við að geta gert í sameiningu án allra öfga.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (18)

  • Auk þess er það nú svo að aðeins þeir sem hafa ekki lesið og þekkja ekki til eldri rita en NT telja það vera „höfuðrit Vestrænnar menningar“. Það er skoðun sem er byggð á vanþekkingu.

  • Skoðanir Evrópuráðsins breyta engu í þessu samhengi.

    Við sem ekki trúum viljum fá að vera trúlaus í friði fyrir þeim sem trúa.

    Þeir geta rekið sína presta, sína kirkju osfrv. – á eigin kostnað.

    Þetta getur ekki verið svo flókið.

  • Hannes! Ekki sammála thér. Audvitad eiga múslimar ad fá ad byggja sína Mosku.
    Eitt höfudrita vestrænnar menningar hefdi verid Betra Thorsteinn thó erfitt gæti verid ad Benda á eitthvad eitt Sem stenst samjöfnud.

  • Baldur, það er stigs- en ekki eðlismunur á málflutningi þínum og Hannesar.

Höfundur