Þriðjudagur 20.12.2011 - 22:03 - Lokað fyrir ummæli

Össur hæfasti stjórnmálamaðurinn!

Frá því Össur Skarphêðinsson kom fram á sjónarsviðið hafa andstæðingar hans í stjórnmálum reynt að tala hann niður og skollaleikurinn með forræði yfir Icsave dómsmálinu er leikinn í því samhengi.
Ástæðan fyrir því að menn láta svona er sú að Össur er stjórnmálamanna hæfastur.  Hæfari en þeir flestir og þeirra best menntaður.  Senilega er hann  hæfasti utanríkiráðherrann sem við höfum átt síðan Jón Baldvin skipaði það embætti og þóttu þó bæði Ingibjörg Sólrún og Halldór Ásgrímsson verðugir fulltrúar þjóðar sinnar í því embætti.
Það er skömm að því að stjórnarþingmaður taki þátt í þeim skollaleik sem er leikinn til þess að grafa undan trausti á ríkisstjórn og utanríkisráðherra.
Auk þess að vera hæfastur er Össur lang skemmtilegastur þingmanna og dyggði honum brot af kímnigáfu sinni til þess.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (14)

  • jammm … hann er alveg ógislega hæfur.

  • Vá! Kommúnískur prestur sem heldur uppá og vitnar í trúleysingjann og vantrúarharðlínumanninn Teit.

    Brandari!

  • Maðurinn sem þú lýsir sem svo svakalega hæfum hefur opinberlega lýst sig sem fávita í þeim málaflokki sem hann á nú að leysa.

  • Guðmundur Sigurðsson

    Allsberi maðurinn í sturtunni besti utanríkisráðherrann! Ertu að grínast???

    Össur Skarphéðinsson ber heiður af eftirlaunalögunum heill og óskiptur. Enginn maður myndi velja hann til að semja fyrir sig um nokkuð sem máli skipti efnahagslega.

    Hvað heldurðu að Össur fengi mörg atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu til að stýra vörn Íslands fyrir EFTA dómstólnum???

Höfundur