Í enska knattspyrnusambandinu eru menn sem berjast af fullri alvöru gegn kynþáttaníði. Í þeirra bókum líðst það ekki í siðaðra manna samfélagi að hrakyrða menn vegna litarháttar. Luis Zuaris skapofsi sem spilar fótbolta með Liverpool hefur orðið uppvís að slíku og fær átta leikja bann fyrir vikið. Með því eru send út sterk skilaboð til allra sem tengjast knattspyrnu að níð á borð við þetta líðst ekki og á sambandið lof skilið.
Allar kenningar um menningarmismun og/eða ótrúverðugleika þess sem kærði detta dauðar. Í þessum dómstól eru menn sem vita alveg hvað þeir eru að gera.
þar er ekkert íslenskt fúsk á ferð en KSÍ hefur tekið á svona màlum af linku hingað til.
(undirritaður hefur í gegn um starf sitt í ECRI komið að reglu og markmiðssetningu sem knattsyrnusambönd fara eftir í þessum efnum)
Sæll Baldur. Þótt ég sé prínsípelt á móti orðinu „kynþáttur“ þá skulum við nota það í bili. En þú ert mjög ánægður með dóminn yfir Suarez. Gott og vel. En í þessu sambandi skulum við athuga hvað gerðist. Tveir fótboltamenn lentu upp á kant hvor við annan vegna einhvers tusks inná vítateig. Það var ekki mjög alvarlegt eins og sjá má á myndum. Patrice Evra kallaði Luis Suarez einhverju dónalegu orði á spænsku. Suarez til hróss hefur hann þóst ekki hafa heyrt viðkomandi orð, því hann vill ekki koma Evra í vandræði fyrir dónalegt orðbragð. Suarez mun hins vegar hafa sagt „Heyrðu Negrito minn, viltu ekki róa þig …“ Negrito er orð sem er notað yfir þeldökka í Úrúgvæ, heimalandi Suarez, og það segja mér kunnugir að það sé ósköp hlutlaust. Alls ekki endilega niðrandi. Enda var afi Suarez þeldökkur, og hann hefur aldrei – hvorki heima í Úrúgvæ, né hjá Ajax þar sem hann spilaði lengi, né á Bretlandi – nokkurn tíma gerst sekur um neitt sem nefna má raunverulegt kynþáttaníð. Alltaf sýnt öllum liðsfélögum fyllstu virðingu, hvernig sem þeir hafa verið á litinn. Eigi að síður fær hann þessa fáránlegu þungu refsing, ekki vegna þess að orðið sem hann notaði hafi verið illa meint, heldur vegna þess að í öðrum heimshluta hafa menn komist að þeirri niðurstöðu að það sé illa meint. Mér finnst þetta orðinn orðhengilsháttur en ekki barátta gegn fordómum. Verður ekki ásetningur um að svívirða að vera til staðar?
Baldur, þú veist ekkert hvort hér var um kynþáttaníð að ræða eða ekki. Spurning um að kynna sér málið aðeins. Hér virðist vera orð gegn orði og jafnvel menningarlegur munur. (Ef orðið Negrito var notað þá er það mjög sérstakt því meðal sumra liðsfélaga Evra er hann kallaður Negrito.) Það hefur líka komið fram að hinn aðilinn í málinu var engu skárri eins og Illugi bendir á. Það er ekki fyrr en við sjáum þennan dómsúrskurð (sem hefur ekki enn verið gerður opinber) hvers vegna hann fær þennan mjög svo stranga dóm, hvaða orð Suarez notaði o.s.fr. En eins og staðan er í dag þá finnst mér þetta mál mjög sérstakt.
En það er alveg rétt hjá þér, níð á ekki að líðast.
Sælir báðir! Sjálfum finnst mér dómurinn í strangasta lagi en ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að hann sé byggður á sandi. Ég sá reyndar þennan leik í TV og undraðist hvað Evra varð reiður sinn eftir sinn. Sjáum til þetta kemur betur í ljós en við erum sem betur fer sammàla um að „kynþátta“ níð á ekki að líðast. Kv.
> „undraðist hvað Evra varð reiður sinn eftir sinn“
Ég undraðist ekki. Þeir sem horfðu á leikinn sáu að Evra réð ekki við skap sitt strax frá fyrstu mínútu. Ég hef aldrei áður séð leikmann rífast við dómara áður en flautað er til leiks en það afrekaði Evra í þessum leik á Anfield. Hann hafði svo allt á hornum sér allan leikinn. Virðist hafa verið eitthvað illa fyrir kallaður.