Fimmtudagur 22.12.2011 - 10:25 - Lokað fyrir ummæli

Maó formaður mættur?

Ég sá einhvers staðar(Ömmi, Styrmir, Bjarni Harðar, Davíð líklegir) að sóun eða fíflska það væri að tugir ef ekki hundruðir Islendinga færu í það að stafla skjölum í Brüssel gengjum við í Evrópusambandið.
Rétt er að margir Islendingar fengju vinnu. Við þyrftum að manna tugi nefnda í öllum greinum – frá mannréttindum til fiskveiða.  Hópur sérfræðinga færi til starfa við framkvæmdastjórnina, nefndir og þingið.  Vinur minn, þingmaður í Eistlandi telur að um 200 samlandar hans hafi þannig farið til starfa í ESB tengdum verkefnum og gæti ég trúað að hinir útrásargjörnu Islendingar myndu  slaga uppí þá tölu eftir inngöngu.

I tilvitnuðum málflutningi er að mínum dómi undirliggjandi að Islandi veiti ekki af vinnufúsum höndum til framleiðslustarfa (minnir á málflutning Maòs formanns).  Allt sem ekki tengist fiskveiðum, landbúnaði eða stóriðju er talað niður. Hnýtt er í allt sem gerist með útlenskum.  Skipulögð og vel rekin ríki og alþjóðavæðing er hædd – alið er á óttatilfinningu.  Allt er gert til þess að koma í veg fyrir það að íslendingar haldi áfram ferð sinni úr torfkofum aldanna yfir í hikstalaust samstarf og samvinnu við aðrar þjóðir.

Einhver mesti ávinningur af samstarfi innan ESB er að hundruðir Islendinga fengju að takast á við verðug verkefni á alþjóðavísu og veittu þar með nýrri þekkingu og nýrri hæfni og nýjum tengingum inn í íslenskt samfélag.

Afi minn, bóndinn, hefði kannski orðið skjalavörður eða kennari ef hann hefði fæðst fimmtíu árum síðar. Bóndinn var þvingað val. Á hverri tíð erum við að móta þá valkosti sem börn okkar og barnabörn munu standa frammi fyrir.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (7)

  • Þú vilt fara með ákvöðrunarvald íslenzkar alþýðu í útrás til
    Bruss sell

  • Lítill hluti skrítna Íslendinga vill í ESB trúboð sem mun svipta okkur auðlindum landsins.

  • Magnus Björgvinsson

    Var að hugsa um í þessu samhengi málflutning Jóns Bjarnasonar og Ögmundar. Að báðir þessir menn sem og stór hluti þjóðarinnar hefði sennilega sómt sér vel og liðið betur í Norður Kóreu. Það gæti dýrkað Davíð Oddson, lifað við sult og kröpp kjör en samt talið sér trú um að það hefði það svo gott og miklu betur en þær þjóðir sem hafa ákveðið að vinna saman, eiga í viðskiptum og mynda hagmunabandalög. En ég skil málflutning ESB andstæðinga ekki öðruvísi en sem vilja um eins litla samvinnu og samskipti við aðrar þjóðir og mögulegt er.

Höfundur