Þriðjudagur 17.01.2012 - 11:46 - Lokað fyrir ummæli

Formaður Framsóknar og gegnsæið!

Það skrifast sennilega  á bernsku formanns Framsóknarflokksins þegar hann heldur því fram (á þingfundi) að leyndarhyggja og ógegnsæi hafi aldrei verið eins mikil og í tíð núverandi ríkisstjórnar.  Sá sem heldur slíku fram hefur ekki lifað lengi eða ekki fylgst mikið með.  Greinilega nývaknaður og skal honum virt það til vorkunnar.  Leyndarhyggja, ógagnsæi og þöggun hefur verið eitt megineinkenni íslenskra stjórnmála og náði hámarki á sældartíma Framsóknarflokksins 1995 til 2007.  Þá voru menn meira að segja að afhenda vinum sínum eignir almennings með mjög ógagnsæjum hætti. Leyndarhyggja og þöggun voru kannski megineinkenni þeirra stjórnarhátta sem þá ríktu og smituðu út frá sér um allt þjóðfélagið.

Dæmigerður Íslendingur í trúnaðarstöðu lítur á hana sem feng sinn og deilir helst engu til almennings.  Nýleg dæmi um salt og kadmíum sýna þetta ljóslega.  Munurinn á deginum í dag og gærdeginum er sá að fólk líður þetta ekki lengur.  Ísland er að opnast.  Núverandi stjórnvöld eru kannski ekki alveg með á nótunum en í þessum efnum sem öðrum eru þau miklu betri en þau stjórnvöld sem við höfðum á síðasta áratug og þeim næstsíðasta.  Og áfram skal haldið.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (5)

  • Þessi orðræða er honum svo nálæg og hugleikin. Þetta eru hlutir sem formaðurinn skilur og getur rætt um af reynslu og þekkingu.

Höfundur