Föstudagur 20.01.2012 - 15:01 - Lokað fyrir ummæli

Bjarni Ben. tapar umræðunni!

Ég horfi með hryllingi til elliáranna og eftir daginn ákveðinn í að fresta þeim sem lengst. Ég ákvað nefnilega að horfa á umræðuna um tillögu Bjarna Benediktssonar slïkt horf mun vera helsta iðja ellibelgja. Þó uppgötvar maður ýmislegt: Árni Þór er betri en maður hélt. Þór Saari er beittasti hnífurinn í skúffunni. Karlar leika aðalhlutverkið á Alþingi. Gunnar Bragi ætti að vera í Sjálfstæðisflokknum. Ólöf Nordal talaði með hrokafullum hætti til Lúðvíks Geirssonar og hefur ekki efni á því og….þetta mál á ekkert erindi inn á Alþingi.  Kaupi ég ekki rök Atla Gíslasonar að enn og aftur þurfi hann og samþingsmenn hans að fara að velta við öllum steinum eins og hann orðar það. Menn verða bilaðir ef þeir setja sêr ekki mörk í steinaveltingi.  Og það stenst ekki skoðun, eins og umræðan er að leiða í ljós að, Alþingi sé að skipta sér af ferli þessa máls.  Það er og á að vera úr þess höndum.

Og frávísunartillaga er ágæt. Um hana verða ekki greidd atkvæði fyrr en eftir ítarlega 1. umræðu.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (19)

  • Árni Aðalsteinsson

    vel mælt Baldur Kristjánsson,þetta er allt „crap“ einsog ein hámenntuð úr flokki Gunnars Kristins gerði grein fyrir með afstöðu sína gagnvart stjórnlagaráði.

  • Halldór Halldórsson

    Kannski heldur Baldur Kristjánsson að fólk hafi beðið með öndina í hálsinum eftir afstöðu hans til Landsdómsmálsins? Ég hefði getað sagt hverjum sem var, allt frá upphafi, að Baldur Kristjánsson myndi hafa þessa afstöðu nú. Allur hans framgangur og málflutningur er þannig!

  • Helgi Jóhann Hauksson

    Sammála Baldri eins og oft.

  • Hreggviður

    Baldur góður eins og ævinlega.

Höfundur