Föstudagur 09.08.2013 - 09:51 - Lokað fyrir ummæli

Vandræðagangur THJOÐKIRKJUNNAR.

Thjóðkirkjan hefur til margra ára  verið í samstarfi við önnur trúfélög yfirleitt undir regnhlífinni samstarf trúfélaga.  Thetta samstarf hefur ekki farið mjög hátt upp á síðkastið enda flestur trúflokkar miklu íhaldsamari en Thjóðkirkjan og ganga á svig við löggjöf landsins i boðum sinni thar sem thau mismuna fólki eftir kynhneigð svo thað augljósasta sé nefnt.

Sem vekur upp hina augljósu spurningu.  Geta samfélög thar sem mannréttindi og mannréttindahugsun hefur augljóslega náð yfirhöndinni liðið thað að innnan theirra vébanda séu (ríkistyrkt) félög sem boða mismun thegnanna og stunda thá boðun að aðeins sú kynhneigð sem algengust er sé thóknanleg. Með öðrum orðum er mismunum leyfleg og réttlætanleg   ef hún er klædd í búning trúar.

Geta opinberir fulltrúar thessa sama ríkis valið um hverja their thjónusta (gifta t.d.) með vísun í samvisku.

Auðvitað á mismunun ekki að líðast. En mismunun thar sem vísað er í samvisku lýsir miklum fordómum og elur á fordómum í thessu tilfelli í garð samkynhneigðra sem hafa búið við ofsóknir, thjáningu, pínu og kvöl alla tíð og mál að linni.

Ágætis byrjun væri sú að nota vald sitt og stærð og hafna samstarfi við thau félög sem ala á fodómum í garð homma og lesbía. Koma mynduglega og virðulega fram (eins og biskupi er lagið). Druslast ekki með eins og sá sem fyriverður sig fyrir stærð sína og eðlilegt  frjálslyndi.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (5)

  • Arnold Björnsson

    Krikjan á auðvitað að stíga skrefið til fulls og banna prestum þjóðkirkjunnar að neita því að gifta samkynhneigða. Annað hvort giftir þjóðkirkjan samkynhneigð pör eða giftir þau ekki. Þessi tvískynungur er óásættanlegur. Kirkjan giftir fráskilið fólk ( „Og sá sem gengur að eiga fráskilda konu, drýgir hór.“ ) getur því alveg eins að gifta samkynhneigt fólk. Bókstafurinn er ekki heilagari en svo. Ef hægt er að hunsa orð Jesú þá er hægt að hunsa orð Páls postula.

  • æ og ð á lyklaborðinu en ekki þ

    hmm

  • Allt gott og blessað.

    Annars fer lítið fyrir myndugleika biskups þegar hún stillir sér upp með mönnum sem taka ekki í hönd hennar vegna kyns hennar og þykir ekkert tiltökumál að myrða fólk vegna kynhneigðar þess.

    Frjálslyndi gagnvart fjölbreytileika fólks er lofsvert.

    Linkind gagnvart öflum sem ekkert frjálslyndi eiga til og vilja steypa alla í sitt mót með góðu eða illu er fyrirlitleg.

    Að kalla slíka linkind frjálslyndi er bjánalegt.

    Að gefa fólki afslátt á mennsku vegna kynþáttar og kalla þá sem það gera ekki rasista er ömurlegt.

  • Haukur Kristinsson

    Franklin Graham er skelfilegur rugludallur og total ignorant. Faðir hans Billy var þó skömminni skárri.

    Fyrir neðan er „link“ í kafla um Franklin í Wikipedia.
    Lesið t.d. „controversy“.

    Gaurinn er moldríkur fasisti og rasisti, málið er nú ekki flóknara en það.
    Þeir sem að bjóða svona týpum til landsins ættu að skammast sín. Og að þjóðkirkjan skuli taka þátt í þessu er að mínu mati alvarlegra mál, en allt ruglið í kringum Ólaf Skúlason á sínum tíma.

    Legg til að Koch bræður verði einnig beðnir að mæta og halda erindi. „Mammon religion“.

    http://en.wikipedia.org/wiki/Franklin_Graham

Höfundur