Sunnudagur 16.03.2014 - 12:24 - Lokað fyrir ummæli

Veikleiki lags Pollapönks

Myndband  með Eurovision lagi Pollapönks veldur mér vonbrigðum. Veikleiki lagsins er að fordómar í því eru takmarkaðir við fordóma gagnvart fötluðu fólki  og auk þess of feitum og kyni fólks hefi ég tekið rétt eftir.  Ekkert er lagt út af fordómum gagnvart  minnihlutahópum sem eiga rætur sínar í uppruna fólks, höfðuvandamáli heimsins þegar fjallað er um fordóma-prejudice. Úr þessu hefði mátt bæta ef ekki í enskum texta þá  í myndbandinu einu saman. Í stað þess eru þar einvörðungu hvít ungmenni. Hvít ungmenni af lútherskum uppruna  frá ríki með eina hörðustu útlendingalöggjöf síns heimssvæðis syngjandi um fordóma í Euróvision. Hljómar ekki vel. Eða hvað?

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (6)

  • Á meginlandinu á þetta eftir að líta út sem afar útreiknuð gleymska.

  • Afleitt lag og alveg laust við listfengi.

    Ef þjóðinni finnst þetta gott eða fyndið er verr komið fyrir Íslendingum en flestir hefðu ætlað.

Höfundur