Fimmtudagur 10.04.2014 - 18:20 - Lokað fyrir ummæli

Orkustöðin Ísland

Skrifað í Fréttablaðið ásamt Arnfríði Guðmundsdóttur, Hjalta Hugasyni, Sigrúnu Óskarsdóttur og Sólveigu Önnu Bóasdóttur.

Oft er sagt að náttúra Íslands sé hlaðin orku. Orka er auðlind sem ekki má fara til spillis.

Sæstrengur?
Mikið er nú rætt um sæstreng sem tengt geti landið við raforkukerfi Evrópu. Sum vona að þessi leið til útflutnings á orku valdi því að hér verði ekki haldið áfram þeirri stóriðjustefnu sem fylgt hefur verið. Önnur vona að hér sé komin leið til að auka hlutfall „grænnar“ orku í álfunni, vinna gegn mengun og hægja á loftslagsvánni. Þá kunna einhver að sjá í sæstreng leið til skjótfengins gróða.

En hvernig mun íslensk þjóð með sæstreng haga forgangsröðun sinni? Hagkvæmast hlýtur að vera að flytja sem mesta orku um strenginn og hætt er við að við búum ekki yfir því siðferðisþreki sem þarf til að nota slíka mjólkurkú af hógværð og stillingu. Um það vitna þeir lífshættir sem þjóðin hefur tamið sér á undanförnum áratugum. Líklegast er að okkar mati að sæstrengur viðhaldi þeirri stórvirkjanastefnu sem hér hefur verið fylgt undanfarið.

Óbreytt ástand ekki í boði
Jafnframt dafnar draumsýnin um olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Draumurinn um sæstreng til nálægra landa og olíupalla í Norðurhöfum vekur efasemdir um yfirlýsingar sumra um „græna“ orku. Er hugsanlegt að tal um hana beri of oft vitni um hræsni og yfirdrepsskap?

Lífsgæðakröfur okkar eru miklar. Við eigum fleiri orkufreka bíla á hvert mannsbarn en flestar þjóðir. Kröfur okkar um húsnæði eru einnig meiri í fermetrum talið. Neysla okkar krefst aukins hagvaxtar og að mati margra verður hann einkum sóttur í orkuauðlindirnar.

Eflaust er það von einhverra að orkan muni gera okkur kleift að viðhalda núverandi orkukrefjandi lífsstíl. Þá vill gleymast að óbreytt ástand er ekki í boði. Í náinni framtíð munu loftslagsbreytingarnar kalla okkur vestrænar þjóðir til ábyrgðar sem aðeins verður öxluð með endurskoðuðu lífsmunstri.

Önnur leið
En til er önnur leið til að beisla orkuna sem býr í náttúru landsins en sæstrengur og olíuvinnsla. Hún felst í að búa með og hvíla í náttúru landsins og öðlast þannig aukin lífsgæði og aukinn kraft. Þetta er sú reynsla sem flestir ferðamenn sækjast eftir. Þetta er líka eina fullkomlega sjálfbæra orkunýtingin. Hlutverk okkar er að leitast við að varðveita og viðhalda hinni náttúrulegu orku landsins og skila henni til komandi kynslóða. Til þess þurfum við að endurskoða núverandi lífsstíl okkar. Við verðum að sönnu að virkja áfram til að mæta brýnustu þörfum samtímans. En það verðum við að gera með því að sýna í verki umhyggju fyrir náttúrunni og komandi kynslóðum.

Náttúra Íslands býr yfir orku sem vekur undrun og eftirvæntingu, virðingu og von. Með því að beisla hana af ábyrgð og umhyggju fyrir óbornum kynslóðum, sýnum við henni þá virðingu sem henni ber sem hluta af hinum góðu gjöfum Guðs. Látum ekki græðgi afbaka skilning okkar á náttúrunni og valda því að við tæmum þá fjársjóði náttúrunnar sem okkur hefur verið treyst fyrir.

 

Flokkar: Stjórnmál og samfélag

«
»

Ummæli (2)

  • Falleg framtíðarsýn. Hún er íhugul og endar með djúpu andvarpi.

    Ekki andstutt og óþolinmóð eins og mennirnir í stóru húsunum hugsa.

  • Reikningurinn vegna glæpa hins opinbera fyrir hrun ætlar að verða ansi hár.

    Miðað við umræðuna, öllu heldur umræðuleysið um möguleg og líkleg neikvæð áhrif sæstrengs á margar hliðar efnahagslífsins, virðist vera sem svo að sala rafmagns í gegnum sæstreng verði enn ein leiðin til að borga háa reikninginn.

Höfundur