Í orði hefur kynningaferli vegna uppbyggingar Landspítala Háskólasjúkrahúss verið ágætt. Fyrst var samkeppnin kynnt og þegar niðurstaða lá fyrir voru úrlausnir til sýnis á Háskólatorgi. Í framhaldi var sérstakur kynningarfundur haldinn um vinningstillöguna. Þá voru haldnir nokkrir opnir fundir þar sem áformin voru kynnt og rædd. Verkefnastjórnin kallaði til sín aðila á einkafundi þar […]
Á blaðsíðu 23 í “Menningarstefnu í mannvirkjagerð”, sem er stefna íslenskra stjórnvalda í byggingarlist stendur: “Áhersla skal lögð á heildarmynd og mælikvarða þegar byggt er í og við eldri byggð. Til að tryggja heildrænt og sögulegt yfirbragð húsa, götumynda og byggðamynsturs er nauðsynlegt að stjórnvöld framfylgi skýrri stefnu þar um” Ég geri ráð fyrir […]
Prófessor við læknadeild HÍ benti í athugasemdarkerfinu í gær á hvar hægt væri að nálgast rök fyrir því hvernig aukningin á nýbyggingarmagninu á lóð Landspítalans átti sér stað. Úr 70-80 þúsund fermetrum upp í um 220 þúsund. Hann gaf upp slóð á vefnum nyrlandspitali.is þar sem hann taldi að hægt væri að finna einhver […]
Verktakaskipulag hefur verið skilgreint þannig að að það þjóni fyrst og fremst, eða eingöngu, þeim sem fjárfesta á viðkomandi svæði. Það er að segja að skipulagið lýtur að þörfum og kröfum þess sem hefur forræði á landinu til eigin nota eða til sölu. Hagsmunir grenndarsamfélagsins eða borgarinnar sem heildar skiptir ekki meginmáli Borgin sjálf, […]
„Það er mikilvægt að gera hlutina rétt, en það er enn mikilvægara að gera réttu hlutina” Þessi fræga kennisetning úr verkefnastjórnun kemur í huga þegar maður veltir fyrir sér auglýstu deiliskipulagi Landspítala Háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Og af hverju gerir hún það. Þegar framtíðarstaðsetning spítalans var ákveðin á sínum tíma var gert ráð fyrir um 70 […]
Í nýjasta eintaki af tímaritinu MODERN PAINTERS er aðal efnið Katrín Sigurðardóttir myndlistarmaður. Það er alltaf ánægjulegt þegar maður verður þess var að íslendingar og verk þeirra vekja athygli í hinum stóra heimi. Katrín segir í viðtali í blaðinu að hún hafi engan áhuga á arkitektúr. („in many ways, I´m profoundly uninterested in architecture“) Þetta […]
Hér að neðan er skemmtilegt og fróðlegt myndband þar sem framkvæmdastjóri Design Museum, Deyan Sudjic, fjallar um sögu og tilurð nokkurra frægra stóla. Allir þeir sem áhuga hafa á húsgagnahönnun ættu að skoða myndbandið sem tekur aðeins um 8 mínútut. Þeim tíma er vel varið.
“Í starfi borgarfulltrúa felast eflaust margar ánægjustundir. Sagt er að þar ofarlega á blaði sé úthlutun nýrra byggingalóða. Kunnugt er, að Reykjavík telur sig þar vera í harðri samkeppni við nágrannasveitarfélögin um búsetu nýrra íbúa, þ.e. nýrra skattgreiðenda. Þótt enginn skortur sé á lóðum af ýmsu tagi þegar litið er á höfuðborgarvæðið sem eina […]
Framkvæmdastjóri danska arkitektafélagsins, Jane Sandberg, vekur athygli á því í nýlegu fréttabréfi, að þúsundir ungra barna eru um þessar mundir að hefja skólagöngu sína. Á Íslandi hefst grunnskólinn einnig á flestum stöðum í byrjun næstu viku. Hún segir að þetta séu mikilvæg tímamót hjá þessum börnum sem munu verða fulltrúar landsins í framtíðinni […]
Það er eitt meginverkefni arkitektsins að lesa staðinn sem hann er að fara að vinna með. Arkitektinn þarf að skynja staðarandann og átta sig á sérstöðu hans með virðingu og í víðu samhengi. Arkitektastofan Kollgátan á Akureyri tók sér vandasamt verk á hendur . Það var að hanna lítinn veitingastað í Lystigarðinn á […]