Miðvikudagur 22.09.2010 - 14:31 - Lokað fyrir ummæli

Kvennakúgun í boði stjórnvalda.

Nú veit ég ekki hvort að Jussanam de Silva varð fyrir ofbeldi en þetta kerfi er ólíðandi.  Ég skora á fyrstu vinstri stjórn lýðveldisins misheppnaða að beita sér fyrir breytingu á því.

Í síðustu skýrslu sinni bendir Evrópuráðsnefndin um misrétti, ECRI, á það að þetta kerfi að konur af erlendum uppruna séu brottrækar úr landi ef þær skilji við eiginmenn sína innan þriggja ára leiði til þess að margar konur sitji fastar í ofbeldissamböndum. Bent er á það að 40% kvenna sem leituðu til Stígamóta á tilteknum tíma hafi verið af erlendum uppruna.

Íslensk stjórnvöld telja greinilega erfitt að breyta þessu en sannfæra fulltrúa ECRI um það að konur sem verði fyrir ofbeldi í samböndum og leiti skilnaðar verði ekki á brott reknar.  Þetta hefur því miður ekki haldið.  Ástæðan er m.a. sú að ofbeldi er oft erfitt að sanna og konur eru taldar ljúga ofbeldi upp á eiginmenn sína til þess að verða ekki vísað úr landi. Þess vegna er þeim vísað úr landi.

Það er til sáttmáli sem heitir ,,Act of Foreigners“ sem tekur á þessu en íslensk stjórnvöld hafa ekki viljað staðfesta hann.

Þetta brottvísunarkerfi er ólíðandi. Þarna er á ferð kvennakúgun í boði stjórnvalda.

 

 

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (14)

  • Steini // 22.9 2010 kl. 22:36
    Þú talar af viti.

  • Ég næ ekki alveg hvers vegna fólk heldur að það séu rök að hlutirnir séu jafnslæmir annars staðar, í því felast ekki nokkur rök.

    Stundum er gott að taka dæmi úr öðrum löndum til þess að sýna fram á að aðferðin virki betur en aðrar í boði, en það er ekki um neitt slíkt að ræða hjá t.d. Bjarna Kristjánssyni. Þetta er svona afsökunaraðferð unglinganna: „Allir eru að gera þetta,“ en breytir ekki nokkru um gjörninginn sjálfan eða gildi hans.

Höfundur