Fimmtudagur 23.09.2010 - 18:52 - Lokað fyrir ummæli

Er Haraldur Benediktsson að bulla?

Ég er einn af þeim sem hefur reitt fram háfa milljón til þess að fá ljósleiðara í hús okkar hjóna að Svínafelli í Öræfum.  Þetta geri ég til þess að geta unnið á tölvuna mína og horft á sjónvarpið mitt.  Það er vitaskuld megnasta óréttlæti, misrétti að íbúar á þessu svæði þurfi að kosta svona miklu til til að standa jafnfætis íbúum á höfuðborgarsvæðinu. Í leiðara í Bændablaðinu lætur Haraldur Benediktsson formaður hagsmunasamtaka bænda að því liggja að þetta sé Evrópusambandinu að kenna þ.e. þarna ,,virðist“ um að ræða ,,enn eitt dæmið um misheppnaða innleiðingu á Evrópusambandslöggjöf“.  Hvað meinar maðurinn?  Er þetta því að kenna að innleiðing misheppnaðist? Verður ekki að bæta úrþví?  Í framhaldinu má hins vegar beinlínis  skilja að þetta sé ESB að kenna.  Er maðurinn bara að bulla. Getur einhver sérfræðingur greint þetta?

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (13)

  • Torfi Stefán

    Eru þið Kristján og Baldur ekki að velta fyrir ykkur hvað telst til grunnþjónustu? Ef við teljum að háhraðanettengin sé grunnþjónusta (ákveðin veita) þá væri ekki úr vegi að ríkið ætti eitthvað að koma að þessu (að fullu er ég ekki alveg viss um þar sem fólk í þéttbýli borgar nú líka alltaf eitthvað).

    En hins vegar má líka athuga það að í jafn dreibýlu landi og Ísland er þá er það helvíti hart fyrir tóman ríkissjóð að leggja í háharaðanettengingu fyrir ekki fleiri en þá sem þarna búa, hvað eru það 90-100 manns.

    Ég myndi samt taka þá afstöðu að ríkið ætti að hafa talsverða aðkomu að þessu. Ég veit ekki með fulla en hiklaust væri hægt að búa til einhverskonar semí-sanngjarna reglugerð hvað þetta varðar enda svona veitur með þeim nauðsynlegri.

Höfundur