Miðvikudagur 22.09.2010 - 14:31 - Lokað fyrir ummæli

Kvennakúgun í boði stjórnvalda.

Nú veit ég ekki hvort að Jussanam de Silva varð fyrir ofbeldi en þetta kerfi er ólíðandi.  Ég skora á fyrstu vinstri stjórn lýðveldisins misheppnaða að beita sér fyrir breytingu á því.

Í síðustu skýrslu sinni bendir Evrópuráðsnefndin um misrétti, ECRI, á það að þetta kerfi að konur af erlendum uppruna séu brottrækar úr landi ef þær skilji við eiginmenn sína innan þriggja ára leiði til þess að margar konur sitji fastar í ofbeldissamböndum. Bent er á það að 40% kvenna sem leituðu til Stígamóta á tilteknum tíma hafi verið af erlendum uppruna.

Íslensk stjórnvöld telja greinilega erfitt að breyta þessu en sannfæra fulltrúa ECRI um það að konur sem verði fyrir ofbeldi í samböndum og leiti skilnaðar verði ekki á brott reknar.  Þetta hefur því miður ekki haldið.  Ástæðan er m.a. sú að ofbeldi er oft erfitt að sanna og konur eru taldar ljúga ofbeldi upp á eiginmenn sína til þess að verða ekki vísað úr landi. Þess vegna er þeim vísað úr landi.

Það er til sáttmáli sem heitir ,,Act of Foreigners“ sem tekur á þessu en íslensk stjórnvöld hafa ekki viljað staðfesta hann.

Þetta brottvísunarkerfi er ólíðandi. Þarna er á ferð kvennakúgun í boði stjórnvalda.

 

 

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (14)

  • Vinstirstjórn, hægristjórn… er einhver að sjá muninn á þessu?

  • Bjarni Kjartansson

    Verð að benda á, þó almælt sé, að ástæður þessara reglna eru ekki alvondar. Málamyndahjónabönd eru oftlega notuð sem aðferð til að fara í kring um inflytjendalög.

    Svo er rétt að benda á, að svona er einnig farið með okkar landa erlendis, bæði karla og konur.

    Sjálfskipuðum ,,góða fólkinu“ er að vísu skítt sama um svoleiðis hluti en veruleikinn er svona

  • Þetta er ekki alls staðar svona Bjarni. Kv. B

  • Getur Jónína Bjartmars ekki reddað þessu?

Höfundur