Þriðjudagur 16.11.2010 - 16:08 - Lokað fyrir ummæli

Ósmekkleg kveðja frá fríkirkjupresti

Undirritaður er á Kirkjuþingi í fyrsta skipti.  Þar sitja 17 leikmenn og 12 prestar. Auk þess þrír biskupar án kosningaréttar.  Mörg ágæt mál eru á dagskrá. Kirkjan er að leggja niður prestsembætti, selja eignir, spara á öllum sviðum.  Kirkjan þarf/ætlar að spara 260 milljónir á tveimur árum. Fyrir árið 2011 er þetta 7,5%. Var um 10% niðurskurður  árið 2010.  Síðan eru mörg mál er snerta innra starf eins og gengur, fræðslustefna og annað slíkt.  Ósmekkleg kveðja frá fríkirkjupresti í Fréttablaðinu í morgun að kirkjan sé að verja úrelta stofnana og embættishagsmuni. Svona sleggudómar bera vott ókunnugleika og dómhörku. Þetta er langt frá því að slíkur andi svífi hér yfir vötnum.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (26)

  • Ég fagna gagnrýni á viðhorf mín. Bið fólk bara að sleppa lygunum.

    Þannig sitjum við ekki með upptökubúnað og tökum upp sunnudagsræður prestanna, það gerir Ríkisútvarp allra landsmanna – eða prestarnir sjálfir í sumum tilvikum.

    „Jafnvægið“ sem hefur ríkt í trúarumræðu á Íslandi hefur verið einfalt. Trú hefur ekki verið gagnrýn þar til fyrir fáeinum árum.

    Ef orðið „siðrof“ hefur einhverja merkingu er alveg ljóst að ótal siðrof hafa orðið í sögu þjóðarinnar.

  • Þvílíkur og annar eins sauður er þessi Gísli I.

    Rangfærslur og lygar til að málflutningur hans líti betur út og er réttlættur.

    aumkunarvert.

Höfundur