Fimmtudagur 06.10.2011 - 11:41 - Lokað fyrir ummæli

Er kristnin óþörf?

Við eigum að gera ríkisvaldið hlutlaust gagnvart trúarbrögðum án þessa ð rjúfa siðinn. Hvað á maðurinn við.

Öll samfélag þurfa festu, grunn, samhengi, stöðugleika. Okkar samhengi sækjum við til kristni.  Hátíðisdagar kristni ramma inn árið. Sigurmerki kristninnar er grunngerð fánans, þess merkis sem við höfum sameiginlega og það mótar sönginn, þjóðsönginns em er okkar sameiginlegi söngur. Við höfum hefðir sem rista djúpt og tengja saman fortíð, nútíð og framtíð.  Í bókmenntum, örðum listum og daglegu lífi eru tákn hvarvetna sprottin upp úr þessum jarðvegi.  Við eigum ekki að bylta þessu af okkur síður en svo.  Kristnin bæði uppfyllir ágætlega trúarþörf þeirra sem hana hafa og frá dögum Konstantíusaar hefur hún skipulega verið byggð upp sem hluti af samfélagsskipun og hefur reynst vel sérstaklega í seinni tíð.

Að þessu sögðu: Við eigum að gæta þess vandlega að algert trúfrelsi ríki.  Þó að siður þessa sérstaka ríkis sé kristinn þá má enginn efast um það að menn njóti jafnræðis sama hvaða trú þeir hafa eða hvort þeir hafi nokkra.  Þetta nái auðvitað til trúfélaga og nái jafnt til veraldlegra sem andlegra hluta.  Allir eiga þannig að hafa sama rétt til bygginga fyrir túfélög sín og sama rétt til fjármuna frá ríkinu sé um slíkt að ræða.  Þetta er ekki vandalaust í framkvæmd því að ríkjandi trúarbrögð hafa alltaf það forskot að fleiri vilja hygla þeim en öðrum og þau tengjast líka kúltúr, fornminjum og sögu með þeim hætti að kann að styrkja þau í nútíma praktíkst séð.

En þetta er verkefni. Í praktískum skilningi þarf ríkisvaldið að verða svo hlutlaust að jafnræði ríki og trúfrelsið það algjört að ekkert ríkisvald reyni að hindra vöxt og viðgang nokkrurrar trúar eða þá trúleysis ef út í það er farið.

Þó að við séum hætt að trúa öllu bókstaflega sem stendur í ritningunum og að flugur séu frá helvíti þá er trúarþörf mikil hjá mörgum manneskjum og mér sýnist hún fá ágæta útrás í hinu kristna drama.  Islömskum vinum mínum virðist líka vel í sinni trúarhefð og svo virðist  um flesta.  Ég er ósammála þeirri tesu Dawkins að hið hófsama trúfólk sé eldiviðurinn fyrir öfgarnar sem finna má aðallega í kristni og islam.  Það má alveg eins rökstyðja það að hið hófsaam fólk haldi öfgunum í skefjum.  Það er því ekki endilega rétt að segja að trú ali af sér öfgar ekki frekar en að trúleysi ali af sér öfgar.  Trú er þarna hvort sem okkur líkar betur eða verr og verður meðan manneskjan er eins og hún er. En um það hvort að svo sé er mönnum rétt og skylt að deila því að engin algild sannindi eru til nema þá helst í raunvísindum en þá opnast nú reyndar nýr gluggi.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (19)

  • Pétur Mack. Svarið við þessu er það að: Vísindin vita ýmislegt en samt svo ósköp lítið Öll vitneskja vísindanna er út á við en engin inn á við. Það er ágætt að trúa á vísindin, en þau hafa ekki leyst lífsgátuna. Guðstrú er ágæt út fyrir sig meðan hún er þess megnug að efla og viðhalda góðu siðferði í samfélaginu þar sem hún starfar. Eins er Búddatrú ágæt en hún er hrein siðferðisboðun. Aðalatriðið er að gott siðerði sé til staðar í samfélögum heimsins að menn greini rangtfrá röngu og sýni ávallt sanngirni.

  • > Guðstrú er ágæt út fyrir sig meðan hún er þess megnug að efla og viðhalda góðu siðferði í samfélaginu þar sem hún starfar.

    Guðstrú hefur ekki einu sinni megnað að viðhalda góðu siðferði innan kirkjunnar, hvað þá samfélagsins.

  • Hrafn Arnarson

    Þessi kafli er þess virði að velta vandlega fyrir sér. Séra Baldur skrifar:Öll samfélag þurfa festu, grunn, samhengi, stöðugleika. Okkar samhengi sækjum við til kristni. Hátíðisdagar kristni ramma inn árið. Sigurmerki kristninnar er grunngerð fánans, þess merkis sem við höfum sameiginlega og það mótar sönginn, þjóðsönginns em er okkar sameiginlegi söngur. Við höfum hefðir sem rista djúpt og tengja saman fortíð, nútíð og framtíð. Í bókmenntum, örðum listum og daglegu lífi eru tákn hvarvetna sprottin upp úr þessum jarðvegi. Við eigum ekki að bylta þessu af okkur síður en svo. Kristnin bæði uppfyllir ágætlega trúarþörf þeirra sem hana hafa og frá dögum Konstantíusaar hefur hún skipulega verið byggð upp sem hluti af samfélagsskipun og hefur reynst vel sérstaklega í seinni tíð.
    Það er mikið rétt að öll samfélög þurfi festu, grunn, samhengi og stöðugleika. Trúarbrögð eru einn þeirra þátta sem skipta máli. Trúarbrögðin hafa það meginhlutverk að útskýra dauðann eða hin óumflýjanlegu endalok hvers einstaklings. Trúarbrögðin setja þessa staðreynd í skiljanlegt samhengi og sætta einstaklinginn við hana. Á öðrum sviðum eru trúarbrögðin ekki eins afgerandi og eiga sér marga keppinauta. Þjóðerniskennd er afar mikilvægt sameiningarafl. Hið sama má segja um sameiginlega tungu og sameeiginlegar minningar eða þjoðarsögu. Árið 1000 taka íslendingar kaþólska trú. Eftir siðaskiptin var sú trú bönnuð með lögum og danska krúnan tók til sín eigur kirkjunnar. Kristni er ekki ein heldur er hún margklofin. Það sjá allri sem vilja sjá að ríkiskirkjan á í djúpri kreppu í dag. Trúverðugleiki og traust er ekki uppá marga fiska. heift og deilur brjótast oft fram. Hátíðisdagar kirkjunnar ramma ekki inn árið eins og séra Baldur segir.Hann líkur eingöngu á formið en ekki innihaldið. Jólin, svo dæmi sé tekið, er fjölskylduhátið.Með gjöfum eru sambönd innan fjölskyldu staðfest og styrkt. Það er hluti af rituali innan sumra(margra) fjölskyldna að fara í messu. trúarþörf er fullnægt með mörgum hætti og að fara í messu getur verið ein leið. Páskarnir eru ferða og útveruhelgi fyrir fjölskylduna. Skíðaferðir eru vinsælar. Niðurstaðan: mikiðvægi ríkiskirkjunnar sem stofnunnar minkar hröðum skrefum og hún er í djúpri kreppu.

  • Pétur postuli

    Kristni er þörf. Hún er auðskiljanleg.

    Jesú bróðir besti er bjarg mitt og festa,
    en ríks-prestar eru algjörlega óþarfir.

    Og ég hlæ að gamla-testamentinu.

    Þetta er mín bjargfasta trú, mín barnatrú.
    Og mig mun ekkert skorta meðan ég hef hana.

Höfundur