Laugardagur 17.12.2011 - 14:08 - Lokað fyrir ummæli

Er Guð til -tilbrigði við spurninguna-

Hugmyndin um Guð er í sjálfu sér hugsunastoppari. Guð sem einhvers konar æðri vera sem hafi skapað heiminn eða komið hinum af stað sem hinn fyrsti hreyfill. Slík hugsun felur í raun í sér uppgjöf því að í henni felst sjálfkrafa að ekki sê hægt að útskýra tilurð heimsins þar sem Guðshugtakið er í raun „code“ orð yfir það sem ekki er hægt að skilja.

En munum við nokkurn tímann skilja eðli og upphaf heimsins? Getum við skilið hvernig eitthvað varð til í upphafi? Úr hverju varð það til? Úr engu? Getur einhver ímyndað sér hvernig „ekkert“ er? Það er varla hægt. Sé hægt að ímynda sér „ekkert“ er það orðið eitthvað! Svo eitthvað hefur alltaf verið til eða hvað? Samaþjappaður massi sem sprakk og alheimurinn varð til? Og þá óendalegur fjöldi slíkra alheima sem hver um sig hefur líftíma sem telur í tugum billjóna ára og verður aftur klumpur sem svo aftur springur! Getur þá einnig verið að óendanlegur fjöldi heima sé á óendanlegum fjölda tíðnisviða?

Svo má aftur spyrja hvort að veröld sé til ef enginn skynjar hana. Ef engin meðvitund er til í formi lífs er þá nokkuð til? Er þá tilurð hins fyrsta einfaldasta lífs fyrsta skynjunin, sköpun hins fyrsta heims? Við komumst víst ekkert áfram með þessu móti heldur þvi eitthvað var til meðan engin skynjun var í gangi sem leiddi til þessarar fyrstu skynjunar.

Mér geðjast best að hugmyndinni að „guð“ sé strákur eða stelpa í öðrum og miklu stærri heimi sem hafi skapað veröldina í tölvunni sinni. Þessi veröld er svo stór á okkar mælikvarða ad hver sekúnda hjá honum/henni sé miilljónir àra hjá okkur. Einn góðan veðurdag stendur krakkinn/unglingurinn upp og slekkur á tölvunni sinni. Kannski mamma hans hafi kallað hann ímat fyrir miljónum ára, hann sè þegar með puttann á slökkvaranum. Guð hjálpi okkur þá!
Ótrúlegt en satt. Á tíunda áratug síðustu aldar var prófessor við M.I.T rekinn fyrir ad halda þessu fram.
Ritað eftir skoðun á greinum Stefáns Snævars en ekki í beinu sambandi við þær!

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (5)

  • Kristjana

    Gýs þá ekki eldfjall ef enginn er til að sjá það? Eru þá engar stjörnur í himingeymnum ef enginn er búinn að uppgötva þær? Endalaust hægt að halda áfram.

  • Kristjana

    Geimnum átti það að veraþ

  • Hér í Strasborg hef ég hallast æ meir að því að allt tal um Guð í sjálfum sér sé til einskis. Hugmyndin um Guð „pro nobis“ sem Elisabeth Parmentier hefur haldið að okkur í prédikunarfræðum er miklu skemmtilegri.

    Eins og Kári Harðarsson myndi segja: Þegar menn tala um Guð, þá skýt ég þá niður eins og silung í tunnu. Þegar þeir lifa trú sína, langar mig að verða eins og þeir.

    Baldur, hvað er Guð fyrir þig? Fyrir mér er Guð uppspretta þess að mig langar að verða betri maður, færari prestur og klárari guðfræðingur, svo að fólk laðist að honum eins og ég laðaðist að honum.

  • Hrafn Arnarson

    Það er einkennilegt að guðfræðingur og prestur skuli skrifa að guð sé hugsanastoppari.jesú er guð og óendanlega mikið hefur verið hugsað og skrifað um hann.Ef við segjum að guð sem skapari heimsins sé leyndardómur og sé mönnum ekki aðgengilegur með beinum hætti þá má segja að hugsunin takmarkist við það.

Höfundur