Þriðjudagur 20.12.2011 - 22:03 - Lokað fyrir ummæli

Össur hæfasti stjórnmálamaðurinn!

Frá því Össur Skarphêðinsson kom fram á sjónarsviðið hafa andstæðingar hans í stjórnmálum reynt að tala hann niður og skollaleikurinn með forræði yfir Icsave dómsmálinu er leikinn í því samhengi.
Ástæðan fyrir því að menn láta svona er sú að Össur er stjórnmálamanna hæfastur.  Hæfari en þeir flestir og þeirra best menntaður.  Senilega er hann  hæfasti utanríkiráðherrann sem við höfum átt síðan Jón Baldvin skipaði það embætti og þóttu þó bæði Ingibjörg Sólrún og Halldór Ásgrímsson verðugir fulltrúar þjóðar sinnar í því embætti.
Það er skömm að því að stjórnarþingmaður taki þátt í þeim skollaleik sem er leikinn til þess að grafa undan trausti á ríkisstjórn og utanríkisráðherra.
Auk þess að vera hæfastur er Össur lang skemmtilegastur þingmanna og dyggði honum brot af kímnigáfu sinni til þess.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (14)

  • Menntun Össurar á sviði viðskipta er óumdeild, enda viðurkenndi hann það sjálfur í 7. bindi rannsóknarskýrslunnar orðrétt að „hann hefði ekki hundsvit á business“.

    það er eitt að vera vel menntaður, í tilhugalífi silunga annars vegar, og hins vegar að gæta hagsmuna heillar þjóðar í viðskiptum. Held að allir séu sammála um að Össur Skarphéðinsson sé vonlaus í þessum málum. Hann hefur nákvæmlega ekkert til að bera svo þessu máli verði landað af einhverju viti.

    Það getur vel verið að einhverjum þyki össur skemmtilegur. Svoleiðis fólk er yfirleitt titlað sem uppistandarar í símaskránni, en ekki hagsmunagæslumenn þegar um tugi eða hundruði milljarða er um að ræða.

    Össur Skarphéðinsson er vonlaus í þessu hlutverki.

  • Snaebjorn

    ???

    Ef Halldór Ásgrímsson er verðugur fulltrúi þjóðar minnar þá segir það hvað um þjóð mína…

  • Óðinn Þórisson

    Hefur hann ekki sjálfur sagst ekki vit hafa á peningamálum ?

  • @hg

    Nei því miður þá er það þín fáviska sem er brandarinn hérna. Voru það Sjallar sem ráku einn síðasta naglan í Sovétið? – Nei það voru kratar í vinstri stjórn undir stjórn framsóknarflokksins.

    Þetta komma kjaftæði í sjálfstæðismönnum er dæmi um hve gjörsamlega gagnlausir þeir eru. Múrin, Sovétið hvarf á síðustu öld og þið eruð en að velta ykkur upp úr þessu. Til þess að gleyma því að í frjálshyggju rúnkinu ykkar þá drulluðu þið upp á bak. Það var ekki koma kjaftur sem kom þar nálægt.

    Ég held að þið þurfið aðra „raison d´etre“ í íslenskri pólitík en löngu dauða hugmyndafræði , jafn dauða og frjálshyggju rúnkið ykkar.

    Já og Össur hefur minn fulla stuðning, enda maður sem sannar það að sá sem er vinstri sinnaður í æsku sé hjartlaus og ef hann er það enþá á miðjum aldri þá er hann heilalaus. Sem er annað og betra en heiladauðir hægri menn sem virðast ekki einungis vera hjartlausir á sínum yngri árum heldur verða líka þeir heilalausir líka á miðjum aldri.

Höfundur