Fimmtudagur 14.06.2012 - 08:57 - Lokað fyrir ummæli

Vinstrivaðlaheiðargöng!

Þegar grannt er skoðað sést að þetta eru vinstrivaðlaheiðargöng. Helstu forystumenn hægri manna eru á móti. Þetta er rökrétt. Vinstri menn eru viljugri en hægri menn að endurdreifa fjármagni í samfélaginu. Taka frá þeim sem eiga peninga sem fara þá annað en í munað þeirra. Í skattfrjálsu samfélagi frjálshyggjunnar yrðu engin göng grafin nema fyrir einkafjármagn.  Út frá eigingjörnum forsendum ættu landsbyggðarmenn því að elska vinstri flokka.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (6)

  • Baldur Kristjánsson

    þakka athugasemdir sem flestar sýna skrítna þörf fyrir að ,,leiðrétta“ aðra. Vitaskuld er svona færsla aðeins rétt út frá tiltekini hugsun. Svo má draga margskonar aðrar ályktanir.

  • Halldór Halldórsson

    Þú áttir örugglega við „VinstriVaðalheiðagöng“, er það ekki? Fyrirgefðu, þetta er innbyggð þörf á að „leiðrétta aðra“!

Höfundur