Laugardagur 08.09.2012 - 11:22 - Lokað fyrir ummæli

Íslenskt misrétti og jafnrétti í trúmálum!

Þeir sem vilja veg væntanlegrar þjóðaratkvæðagreiðslu sem mestan ættu meta það við þjóðkirkjuna að hún hvetur fólk til þess að láta sig málið varða.  það eykur gildi atkvæðagreiðslunnar í heild sinni.

Þjóðkirkjan tekur þann pól í hæðina að ákvæði um hana sé best komið í stjórnarskrá. En hún lætur ekki þar við sitja.  Hún vill að staða réttindi annarra trú-og lífsskoðunarfélaga verði tryggð.  Ég vil reyndar skoða hvernig Norðmenn leystu málið.  Ákvæði Norðmanna  hefst á ákvæði um að fullt og óskorað trúfrelsi ríki í Noregi.  Síðan kemur ákvæði um að Norska kirkjan sé þjóðkirkja. Þá ákvæði um það að ríkisvaldið skuli styðja hana með ámóta hætti og hún styður önnur trúfélög.

Þetta er sama og að segja.  Allir eru jafnir en við höfum ákveðið að styðjast sérstaklega við siðferðisboðskap og helgihald sem í boði er hjá þessu tiltekna trúfélagi. Þessi hugsunn gerir ráð fyrir því að eitt samfélag þurfi eitthvað slíkt, einhverja ,,æðri“ skipun til að leggja blessun sína yfir þjóðskipulagið og rétt sé að halda sig við farsæla hefð.

Nú er ég ekkert á því að endilega sé rétt að blanda saman veraldlegu og túarlegu valdi.  Ég held að sú leið sem flestar þjóðir allra trúarbragða hafa farið sé farsælust að aðskilja veraldlegt og túarlegt vald og vald með tilvísun í æðri mátt er beinlínis hættulegt og gerir menn ruglaða.  Þannig vil ég hvorki sjá islamista við völd né hægrisinnaða bandaríska guðsmenn. Kerfið okkar er hins vegar hættulaust.  Þjóðkirkjur á norðurslóðum liggja yfirleitt fram á lappir sínar og sleikja á sér tærnar.

Sem sést best á því að ískenska þjóðkirkjan ályktar bara um sjálfa sig og stjórnarskrána. Ekki um auðlindaákvæði stjórnarskrár eða atkvæðisrétt fólks hvortveggja atriði sem snerta grundvallarskilning okkar á tilverunni.  Þetta sýnir að kirkjan er hefðarkirkja ekki  baráttukirkja fyrir því að skapa ,,réttláta“ umgjörð um líf fólks.

Mannréttindanefnd S.Þ.gerðu í sumar tvenns konar athugasemdir við umgjörð trúmála á Íslandi.  Í fyrsta lagi er íslenskum stjórnvöldum bent á það að þeir sem standi utan trúfélaga  greiði líka  kirkjuskatt.  Þeir greiði því hærri skatt en aðrir. (Mannréttindanefndin lítur því þannig á eins og kirkjan að sóknargjöld séu félagsgjöld).  Í annan stað er bent á það að þjóðkirkjan fái á Fjárlögum upphæðir sem önnur trúfélög fái ekki.  Hér mun átt við ca. 600 miljón króna framlag til Kirkjumálasjóðs og Jöfnunarsjóðs (en ekki laun presta og biskupa sem eru til komin af  jarðarsamningi ríkis og kirkju). Það er mikilvægt hvort sem ákvæði um þjóðkirkju verði áfram í stjórnarskrá eða ekki að ofangreint verði leiðrétt.  þeir sem standi utan túfélaga þurfi ekki að greiða trúfélagsgjald annarsvegar og að umræddum 600 miljónum verði skipt prósentvís milli trúfélaga eftir meðlimafjölda þeirra.

Við viljum lifa í þjóðfélagi án mismununar.  Þjóðkirkjan á að vera í fararbroddi fyrir þeirri hugsjón sem byggist á því að allir menn séu bornir jafnréttháir. Kirkjan hefur orðað þá hugsun þannig að allir séu skapaðir í Guðs mynd og það er flott formúlering hvort sem menn trúa því að Guð sé til eða ekki.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (6)

  • Sigurður Þorsteinsson

    Já, jafnrétti sagðir þú Baldur, hvort átt þú þá við þann jöfnuð sem margir jafnaðarmenn í Evróðu þar sem allir menn eiga að vera jafnir, eða eins og í austurblokkinni og hjá Samfylkingunni á Íslandi, að ,,Sumir menn séu jafnari en aðrir“.

    Annars kom ég að einu jafnaðarmáli þar sem kirjan kom einnig að. Snérist um útfararþjónustur. Mátti Útfararþjónusta Kirkjugarðanna niðurgreiða sína útfararþjónustu með kirkjugarðsgjöldum, til þess gera útaf við Líkkistuvinnustofu Eyvindar Árnasonar. Einn aðalleikarinn í þessu máli hét Ólafur Skúlason náinn samstarfsmaður þinn til margra ára. Eitt af því sem gerði þetta mal flóknara var að forsvarsmaður líkkistuvinnustofunnar hafði gerst svo kræfur að spurja biskupinn um samneyti biskups við nokkrar konur. Þetta kallaði nánast á bannfæringu. Líkkistuvinnustofan vann málið fyrir Hæstarétti, en bæturnar dugðu ekki til þess að rétta hlut eigandans og því stóð hann slippur og sauður. Ekki man ég eftir neinum afsökunarbeiðnum, jú ég man eftir afökunarbeiðni frá þér í þessum málum varðandi kvennmennina seint og síðar meir, þar sem þú hafðir verið biskupsritari.

    Þegar allt er á bontinn hvolft, þá er orðið jöfnuður, bara eins og hvert annað orð í orðabókinni, ef á bak við það er erkkert.

  • Athugasemdir þínar Sigurður eru oft ágætar en þú virðist vera með Samfylkinguna á heilanum og þvælir henni inn í allt sem þú skrifar. Kom eitthvað uppá? Svo hefurðu tilhneigingu til að gefa lítið fyrir það sem ég skrifa. Hvers vegna ertu þá að kommentera?

Höfundur