Mánudagur 26.05.2014 - 14:38 - Lokað fyrir ummæli

Um moskur og trúfrelsi

Svolítið um moskur og trúfrelsi. Það gleymist oft í umræðunni að við tilheyrum Evrópuráðinu og undirgöngumst þar með (síðan 1950) Mannréttindasáttmála Evrópu er kveður m.a á um trúfrelsi. ECRI sem er sá aðili innan Evrópuráðsins sem fjallar um kynþáttafordóma og þess háttar hefur t.a.m. rekið augun í þessa moskufælni Reykjavíkur sem nú er formlega komin í lag.  Að láta annað gilda um moskur en önnur athvörf fyrir trú er hreint brot á trúfrelsi og þar með 9. Grein Mannréttindasáttmála Evrópu. Alvörustjórnmálamenn(og alvöruflokkar) fara ekki fram á þjóðarátkvæði sem brýtur gegn sáttmálum sem við sem þjóð höfum undirritað. Þess má  geta að Evrópudómstóllinn sem við vitnum til á hátíðarstundum byggir á Mannréttindasáttmála Evrópu. Hér er það sem ECRI sagði um þetta mál 2011.

 

Að mati ECRI verður að líta á tregðu stjórnvalda til að leyfa byggingu fyrstu

mosku á landinu sem merki um umburðarleysi gagnvart trúarbrögðum. Enn

fremur er augljóslega verið að mismuna trúarbrögðum, þar sem fulltrúar annarra

minnihlutatrúarbragða hafa ekki átt í neinum erfiðleikum með að fá lóðir og leyfi

fyrir byggingu tilbeiðslustaða5. Með því að tefja þetta mál er verið að senda skýr

skilaboð um að múslímar séu ekki velkomnir á Íslandi. Þetta skýtur stoðum

undir andúð á múslimum af því tagi sem lýst er að ofan. Að mati ECRI er

mikilvægt að íslensk stjórnvöld leysi úr þessu máli sem fyrst.

108. ECRI hvetur stjórnvöld eindregið til að veita samfélagi múslima á Íslandi leyfi til

að byggja moskur og úthluta þeim landi svo þeir geti iðkað trú sína eins og þeir

hafa rétt til skv. 9. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

 

Samfylkingin er eini íslenski stjórnmálaflokkurinn sem hefur undirritað tilmæli Evrópuráðsins um þjóðfélag án kynþáttaforrdóma. Sjálfstæðisflokkur, Besti flokkur, Björt Framtíð, Vinstri  grænir og Píratar og Dögun hafa heldur ekki reynt að gera út á fordóma í atkvæðasmölum sinni. Í Evrópu hefur lítið borið á því að meginstaumsflokkar hafa tileinkað sér þessa umræðu.  Þó hefur umræðan harðnað vegna uppgangs flokka til hægri og vinstri og kenndir hafa verið við öfgar og hafa verið að fá fjórðung eða rúmlega það,  þar sem mest er, af atkvæðum til Evrópuþings ESB út á andstöðu sína við innflytjendur og ESB.

Að mínu mati er æskilegt að Íslendingar alist upp í opnu fjölmenningarsamfélagi svipað og nú er. Ein af forsendum þess er trúfrelsi. (þess má geta að moskur eru í öllum löndum Evrópu t.d. um 90 í Noregi(má vera víð skilgreining). Það má svo ræða undir öðrum formerkjum hvort að trú eins og hún er víða framsett stenst einföldustu mannréttindi en það er önnur umræða.

Flokkar: Óflokkað · Stjórnmál og samfélag

«
»

Ummæli (16)

  • Baldur Kristjánsson

    Rétt Dögun á allt gott skilið í þessum efnum. Kv. B

  • Baldur Kristjánsson

    leiðrétt

  • Hannes Þórisson

    Sæll.

    En hvað með ef trúastofnanir/kirkjur eða moskur boða hatur og árásir á aðra? Eigum við að líta á það sem partur af trúarréttindum? Nú er ég ekki að tala um að banna mosku eða álíka, í mínum huga er það frágengið mál heldur hve langt eigum við að láta trúfrelsi ná þegar það er farið að hafa áhrif á frelsi og líf annara hópa?

Höfundur