Svolítið um moskur og trúfrelsi. Það gleymist oft í umræðunni að við tilheyrum Evrópuráðinu og undirgöngumst þar með (síðan 1950) Mannréttindasáttmála Evrópu er kveður m.a á um trúfrelsi. ECRI sem er sá aðili innan Evrópuráðsins sem fjallar um kynþáttafordóma og þess háttar hefur t.a.m. rekið augun í þessa moskufælni Reykjavíkur sem nú er formlega komin í lag. Að láta annað gilda um moskur en önnur athvörf fyrir trú er hreint brot á trúfrelsi og þar með 9. Grein Mannréttindasáttmála Evrópu. Alvörustjórnmálamenn(og alvöruflokkar) fara ekki fram á þjóðarátkvæði sem brýtur gegn sáttmálum sem við sem þjóð höfum undirritað. Þess má geta að Evrópudómstóllinn sem við vitnum til á hátíðarstundum byggir á Mannréttindasáttmála Evrópu. Hér er það sem ECRI sagði um þetta mál 2011.
Að mati ECRI verður að líta á tregðu stjórnvalda til að leyfa byggingu fyrstu
mosku á landinu sem merki um umburðarleysi gagnvart trúarbrögðum. Enn
fremur er augljóslega verið að mismuna trúarbrögðum, þar sem fulltrúar annarra
minnihlutatrúarbragða hafa ekki átt í neinum erfiðleikum með að fá lóðir og leyfi
fyrir byggingu tilbeiðslustaða5. Með því að tefja þetta mál er verið að senda skýr
skilaboð um að múslímar séu ekki velkomnir á Íslandi. Þetta skýtur stoðum
undir andúð á múslimum af því tagi sem lýst er að ofan. Að mati ECRI er
mikilvægt að íslensk stjórnvöld leysi úr þessu máli sem fyrst.
108. ECRI hvetur stjórnvöld eindregið til að veita samfélagi múslima á Íslandi leyfi til
að byggja moskur og úthluta þeim landi svo þeir geti iðkað trú sína eins og þeir
hafa rétt til skv. 9. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Samfylkingin er eini íslenski stjórnmálaflokkurinn sem hefur undirritað tilmæli Evrópuráðsins um þjóðfélag án kynþáttaforrdóma. Sjálfstæðisflokkur, Besti flokkur, Björt Framtíð, Vinstri grænir og Píratar og Dögun hafa heldur ekki reynt að gera út á fordóma í atkvæðasmölum sinni. Í Evrópu hefur lítið borið á því að meginstaumsflokkar hafa tileinkað sér þessa umræðu. Þó hefur umræðan harðnað vegna uppgangs flokka til hægri og vinstri og kenndir hafa verið við öfgar og hafa verið að fá fjórðung eða rúmlega það, þar sem mest er, af atkvæðum til Evrópuþings ESB út á andstöðu sína við innflytjendur og ESB.
Að mínu mati er æskilegt að Íslendingar alist upp í opnu fjölmenningarsamfélagi svipað og nú er. Ein af forsendum þess er trúfrelsi. (þess má geta að moskur eru í öllum löndum Evrópu t.d. um 90 í Noregi(má vera víð skilgreining). Það má svo ræða undir öðrum formerkjum hvort að trú eins og hún er víða framsett stenst einföldustu mannréttindi en það er önnur umræða.
„Það má svo ræða undir öðrum formerkjum hvort að trú eins og hún er víða framsett stenst einföldustu mannréttindi en það er önnur umræða.“
Þetta þýðir s.s. að ef fólk gerir æðri veru ábyrga fyrir hatri sínu og forneskju þá á hatrið og forneskjan fullan rétt á sér.
.Samkvæmt þessu ecri-erkibulli. Þá ætti trúfélag sem hefði það að yfirlýstu markmiði að drepa alla múslima rétt á að fá lóð undir starfsemi sína endurgjaldslaust úr dauðri hönd samfylkingarinnar.
Eða hvað?
Þetta á kannski bara við ef trúin hefur yfirlýsta stefnu um ofsóknir gegn samkynhneigðum, stækt kynjamisrétti og löghelgað barnaníð.
>Enn fremur er augljóslega verið að mismuna trúarbrögðum,…
Ertu á móti því að ríkið mismuni trúarbrögðum? :S
Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands 65.gr talar um trúfelsi, en 65.gr segir líka meira „konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna“ þannig er það hjá kristnum á Íslandi í dag, sem betur fer, en því er ekki að fagna hjá þeim trúarbrögðum sem þú ert að tala um, þau mismuna kynjunum svo herfilega sem dæmin sanna.
Þannig að ég vil meina að við eigum ekki að leyfa trúarbrög, sem falla ekki innan ramma Stjórnarskrárinnar, mér er lífsins ómögulegt að komast að annari niðurstöðu samkvæmt Stjórnarskrá svo við tölum nú ekki um fjölkvæni, og barnagiftingar. Þannig að mín niðurstað er því sú að við verðum að breyta Stjórnarskrá og öðrum lögum landsins til að leyfa þetta.
Tek undir þetta, trúfrelsi innan ramma Stjórnarskrárinnar og annara laga sem í gildi eru í landinu.
Jón Ólafur, heldurðu að ákvæði um giftingafjölda og giftingaaldur – fari bara ekki eftir íslenskum lögum?
Jafnframt, að vilt þú sem sagt banna Islamstrú?
Framsóknarmenn hafa nú ekki sagt það ennþá, að eg tel.
Róa sig aðeins.
Snýst þetta ekki um fjármál og staðsetningu hjá framsóknarmönnum?