Sunnudagur 22.06.2014 - 09:19 - Lokað fyrir ummæli

Vaxandi hatursorðræða!

Súperdagar Dawkins, Harris og hins íslenska Magnúsar eru liðnir í bili a.m.k. Segja mà að þeir hafi unnið rökræðuna en tapað umræðunni vegna þess að þó að trúarbrögð kunni að virðast fáránleg þá hefur fólk að því er ályktað verður, mikla, jafnvel meðfædda ( genetíska) þörf fyrir að trúa á æðri veru og fylgifiska hennar.

Og fólk virðist trúa sem aldrei fyrr. Kristnir, íslamistar, gyðingar eru allir að gíra sig upp trúarlega og um leið tifinningalega.

Og hluti þessa og kannski afleiðing er að öfgamenn hvers konar eru að ná vopnum sínum. Hatursorðræða fer vaxandi. Þessi orðræða beinist ekki hvað síst að kristnum, íslamfólki og gyðingum og oftar en ekki flagga hatursmennirnir eða konurnar ást á sínum eigin trúarbrögum.
En það er önnur hlið á haturs umræðunni. Hún á framgang sinn ekki endilega í vaxandi hatri á minnihlutahópum og þeim sem teljast öðruvísi (evrópusambandinu þess vegna í okkar heimshluta). Oftar en ekki er um hreint valdatafl að ræða. Ósvífnir og siðlitlir stjórnmálamenn hoppa hreinlega upp á þá vagna sem eru líklegir til atkvæða. Notfæra sér það að í þjóðfélögum öllum er til staðar ótti við hið óþekkta, ótti við breytingar o.s.frv. Þessir stjórnmálamenn aðhafast svo lítið sem ekkert komnir í valdastöður og eru að því leitinu til skárri en hinir raunverulegu hatarar.
Víðast hvar koma þessir valdapólitíkusar fram í nýjum flokkum. Séríslenskt afbrigði er að gamall og virðulegur miðflokkur virðist tekinn til handargagns að þessu leyti.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (12)

  • Ólafur Jóhannsson

    Er ekki nær að nota hugtak eins og til dæmis andúð til að lýsa þessu ákveðna hugarfari?
    Ég til dæmis hef ákveðna andúð á hópi manna sem kallar sig Hells Angels, og hef talað á móti þeim og notað til þess sterk lýsingarorð.
    En ég hata ekki þennan hóp.

  • Skil. Sennilega rétt í mörgum tilfellum.

Höfundur