Miðvikudagur 16.3.2011 - 14:28 - Slökkt á athugasemdum við 21. mars 2011.

21. mars 2011.

Á Íslandi er vart pláss fyrir nema eina umræðu í einu.  það sem ekki er peningamál eða spilling fær engan gaum. Á meðan svelta hin þörfustu mál nema sá flötur þeirra er snýst um peninga. Þetta er auðvitað skiljanlegt.  Fólk talar um það sem það hefur ekki.  Því miður hefur það yfirleitt verið svo með flesta Íslendinga að þeira hafa þurft að tala um peninga, nema þeir sem töluðu um lúxusnekkjur. Nú ætlum við í Þjóðmálanefnd kirkjunnar að grafa upp mál sem verið hefur í umræðusvelti.  Hvað erum við að gera til þess að sporna við því illræmda fyrirbæri kynþáttafordómum.  Við veljum til þess dag sem hefur verið útnefndur Alþjóðadagur gegn kynþáttafordómum 21. mars. Allt um ætlun okkar á þeim degi fer hér á eftir: 

,,Mánudaginn 21. mars er alþjóðadagur gegn kynþáttafordómum.  
Af því tilefni boðar Þjóðmálanefnd Þjóðkirkjunnar til málþings undir
yfirskriftinni: Hvar erum við stödd?  Þar munu Toshiki Toma og Baldur Kristjánsson fjalla um kynþáttafordóma, afleiðingar þeirra og varnir gegn þeim.  Toshiki er prestur innflytjenda hér á landi, Japani sem býr á Íslandi, og hefur látið einna mest til sín taka á þessu sviði af landsmönnum. Hann fjallar sérstaklega umn mikilvægi þess að berjast gegn kynþáttafordómum. Baldur er sérfræðingur í ECRI (European Commision against Racism and Intolerance) og mun m.a.fjalla um hvað íslenskum stjórnvöldum hefur verið ráðlagt á þessu sviði og hvað þau gætu gert til þess að berjast gegn kynþáttafordómum og misrétti sem  af þeim leiðir. Þá mun Magnús Erlingsson sóknarprestur á Ísafirði segja frá því sem kirkjan er að gera á Vestfjörðum til þess að styrkja stöðu minnihlutahópa og einstaklinga innan þess hóps og Svavar Stefánsson sóknarprestur í Fella- og Hólasókn skýra frá því sem þau hafa verið að gera til þess að ná til innflytjenda. Fundarstjóri er Inga Rún Ólafsdóttir Kirkjuþingsmaður og fulltrúi í Þjóðmálanefnd Þjóðkirkjunnar.
 
Málþingið hefst kl 12 og er í safnaðarheimili Neskirkju eða torginu eins og það er kallað, öllum opið og fólk borgar fyrir salinn með því að kaupa súpu eða kaffi.“

,,Alþjóðlegur baráttudagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynþáttamisrétti er 21. mars ár hvert en sá dagur er valinn til að minnast þess að 21. mars árið 1960 skaut lögregla í Sharpeville í S-Afríku 60 manns við friðsamlegmótmæli gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda.“

Flokkar: Óflokkað

Mánudagur 14.3.2011 - 11:30 - 2 ummæli

Hvar erum við stödd?

Eftir viku, mánudaginn 21. mars er alþjóðadagur gegn kynþáttafordómum.  Af því tilefni boðar Þjóðmálanefnd Þjóðkirkjunnar til málþings undir yfirskriftinni: Hvar erum við stödd?  Þar munu Toshiki Toma og Baldur Kristjánsson reyna að greina í hve miklum mæli kynþáttafordómar dafna hér á landi og svara því hvað við erum að gera til þess að berjast gegn þeim og hvað við gætum gert.  Toshiki er prestur innflytjenda hér á landi og sá Íslendingur sem hefur látið einna mest til sín taka á þessu sviði. Baldur er sérfræðingur í ECRI (European Commision against Racism and Intolerance) og mun m.a.fjalla um hvað íslenskum stjórnvöldum hefur verið ráðlagt á þessu sviði og hvað þau gætu gert til þess að berjast gegn kynþáttafordómum og misrétti sem  af þeim leiðir. Þá mun Magnús Erlingsson sóknarprestur á Ísafirði segja frá því sem kirkjan er að gera á vestfjörðum til þess að styrkja stöðu minnihlutahópa og einstaklinga innan þess hóps.

Málþingið hefst kl 12 og er í safnaðarheimili Neskirkju eða torginu eins og það er kallað, öllum opið og fólk borgar fyrir salinn með því að kaupa súpu eða kaffi.

Flokkar: Óflokkað

Laugardagur 12.3.2011 - 16:34 - 3 ummæli

Össur ræðir við Svartfellinga!

Ég sé að Össur Skarphéðinsson er í Ungverjalandi á fundi forystumanna Evrópusambandsins og hitti þar sérstaklega utanríkisráðherra Svartfjallalands. Svartfellingar sækja nú eins og við um aðild að  Evrópusambandinu og mikil samstaða er meðal þeirra um að komast þar inn.  Þeir eru nýbúnir að kljúfa sig frá Serbíu(2006) og vilja nú tryggja sjálfstæði sitt og framfararir í landinu með því að taka fullan þátt í samstarfi sjálfstæðra þjóða í Evrópu.  Ég var í Montenegro um daginn á vegum Evrópuráðsins. Það var gott að koma þar sérstaklega fyrir Íslending.  Ísland var fyrsta landið sem viðurkenndi sjálfstæði Montenegro. Það glaðnaði yfir andlitum þegar ég var kynntur komandi frá Íslandi. Í haust var ég í Litháen.  Það er líka gott að vera íslendingur þar. Við vorum einnig fyrst til að viðurkenna sjálfstæði þeirra.  Voru ekki kratar utanríkisráðherrar í báðum tilfellum hér.  Alltaf þegar þeir eru í utanríkisráðuneytinu gerist eitthvað athyglisvert.  Nú er Össur þar, hæfur og reyndur, vonandi göngum við í ESB á hans tíma, samferða Montenegro.  Það yrði frábært.

Flokkar: Óflokkað

Föstudagur 11.3.2011 - 16:33 - 7 ummæli

Uppeldisrof !

Það varð uppeldisrof á níunda áratugnum.  Þá hættu íslendingar endanlega að ala upp nýjar kynslóðir.  Báðir foreldrar voru farnir að vinna úti. Bæði kom til sjálfsögð og eðlileg jafnréttisbarátta og svo þurfti þess smám saman til þess að standa undir félagslegum kröfum.  Á árunum 1976 til 1996 gjörbreyttust velmegunarviðhorfin.  Normið var að eiga góða bíla, sjónvörp, tölvur, íbúðir stækkuðu, sumarhús spruttu upp, hesthús byggð. Foreldar í dag sem voru að alast upp þá ólust upp sjálf, fengu ekki í vöggugjöf arf kynslóðanna, siði og siðvit og eru náttúrulega eru ófær um að skila einu eða neinu til sinna barna. Úr þessum arflausa jarðvegi sprettur fólk sem telur allt í lagi að vera vítisenglar, úr þessum jarðvegi spruttu útrásarvíkingarnir og úr þessum jarðvegi spretta núverandi stjórnendur Arion banka.  þetta fólk hefur enga tilfinningu fyrir þeim sáttmála sem batt Íslendinga saman.  Það þekkir varla mun á réttu og röngu.  Það hefur ekki lesið Íslendingasögurnar og Laxness, hvað þá Þórberg og það heldur að Bjartur í Sumarhúsum hafi verið hetja.

Flokkar: Óflokkað

Fimmtudagur 10.3.2011 - 15:15 - 6 ummæli

Borgaryfirvöld standa sig……

Og enn minni ég á að Íhaldsstjórnin í Bretlandi er að skera miklu meira niður en vinstri stjórnin hér. Síðast voru þeir að skera niður laun og fjölda lögreglumanna.  Annars eru borgaryfirvöld í Reykjavík að standa sig vonum framar. þetta fólk í meirihlutanum, Gnarr og Dagur og Oddný,  á virkilegt hrós skilið fyrir það að leggja í það að sameina skóla, leikskóla og grunnskóla og spara á allan hátt í rekstri borgarinnar. Eins og fyrri daginn andmæla allir og virðast gleyma því að hér varð efnahagshrun og peningar eru takmörkuð auðlind.  Landsbyggðin hefur farið í gegnum sameiningu og niðurlagningu skóla og ekkert að því þó hið sama sé gert í þéttbýlinu þar sem almenningssamgöngur gera allt dæmið auðveldara.  Ofaní kaupið er hreyfing, breyting, já endurskipulagning yfirleitt af hinu góða.

Flokkar: Óflokkað

Þriðjudagur 8.3.2011 - 14:53 - 5 ummæli

Thor væri óskiljanlegur….

Ég fór að kíkja og ég sé að ég á margar bækur Thors.  Ég man hvernig því víkur við.  Á þrítugsaldri var mér umhugað um að upptrekkja bókmenntasmekk ættarinnar og gaf nánum ættingjum bók eftir Thor Vilhálmsson á jólum. Oftar en ekki hélt ég á gjöfinni heim með þeim orðum þiggjanda að hún væri betur komin hjá mér – Thor væri óskiljanlegur.

Samt las ég þær fæstar og er ef til vill einbeitingaskorti um að kenna. Og þó, Grámosinn lifir í huga mér, andblær hans settist þar að. Það er þannig að maður man göngu yfir úfið hraun betur en rölt yfir sléttan mel.  Og í nótt rifjaði ég upp Turnleikhúsið.  Ég var sendur með það heim aftur og sofnaði út frá því á jólanótt og síðan hefur mannþröngin í við leikhúsið og í andyrinu og uppgangan í turninn fylgt mér með sínum þröngu göngum, veggmyndum og ólíkinda andrúmslofti. En ég kláraði bókina aldrei.  Nú skal hún kláruð og endurútgáfu á verkum Thors beðið svo ég geti gefið nýrri kynslóð ættmenna gjafir sem gætu útvíkkað innra rými heilans og gert hann að notalegri stað til að vera á.  Því að Thor var og er snillingur.

Mér finnst leitt að hafa aldrei kynnst Thor persónulega.  Sem blaðamaður tók ég aldrei viðtal við hann. Mér var aldrei trúað fyrir neinu öðru en pólitík á meðan gáfumenn á borð við Egil Helgason sáu um aðra gáfumenn.

Flokkar: Óflokkað

Mánudagur 7.3.2011 - 19:34 - 12 ummæli

Bændur, verið óhræddir, því …….

Nokkur ár síðan ég reyndi að segja forystumanni íslenskum að ekki væri allt sem sýndist með að finnskur landbúnaður hefði farið illa út út úr ESB aðild.  Ekki var hlustað, menn eru fastir fyrir. Þetta var eftir samræður sem ég átti við finnskar mannvitsbrekkur. Nú hefur Þröstur Haraldsson leitt rök að því sama í ríkara mæli enda lengra um liðið. Breytingar á finnskum landbúnaði er breytingar tímans ekkert ósvipaðar því sem hafa orðið hér en margskonar evrópsk útfærsla hefur styrkt byggð í Finnlandi og æ fleiri forystumenn bænda þar telja að finnskum landbúnaði sé betur borgið innan ESB en utan.

Ótti forystu bænda við ESB er þegar öllu er á botninn hvollft ótti við breytingar, ótti við framtíðina. ESB eða ekki, dregið verður úr tollum og viðskiptahindrunum, en innan ESB er lögð áhersla á að styrkja byggð og búsetu á dreifbýlum svæðum.  Bændur eiga auðvitað að haska sér í það að nútímavæða framleiðslu sína og búa í haginn fyrir þann tíma þegar tollmúrar hrynja eins og múrar Jeríkó og þeir geta flutt framleiðslu sína óhindrað út, beint frá býli ef því er að skipta.  Bændur, verið óhræddir,  því…….

Landbúnaði stafar ekki hætta af ESB.  Landbúnaði á Íslandi stafar fyrst og fremst hætta af lögum frá 2003 sem afléttu ábúendaskyldu á jörðum. Þá var Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra.

Flokkar: Óflokkað

Laugardagur 5.3.2011 - 14:44 - 3 ummæli

Málflutningur Þorgerðar Katrínar….

Eins og ég upplifi málflutning Þorgerðar Katrínar og Ragnheiðar Elínar þingkvenna þá telja þær að mikil umræða hafi farið fram um staðgöngumæðrun innan og utan Alþingis.  Margt gott hafi komið fram í umræðunni annað síðra og nú sé bara að drífa sig í að samþykkja málið svo að fólk þurfi ekki að bíða.   Alveg er horft fram hjá því að niðurstaða ætti í siðuðu lýðræðisríki að vera í samræmi við umræðuna.  Umræðan á að leiða til niðurstöðu sé allt með felldu. Þetta á ekki að vera eins og tíðkast hefur á Alþingi að mál eru rædd og rædd og síðan samþykkt án tillits til umræðunnar en í slíku andrúmslofti hafa þær stöllur auðvitað verið allt of lengi.  Rétt er að minna á að 13 af 15 umsagnaðilum um málið mæltu gegn þingsályktunartillögu um að leyfa staðgöngumæðrun þegar Alþingi leitaði umsagna: mannréttindasamtök, samtök kvenna, læknar, þjóðkirkjan eða allir(eða nær allir) umsagnaraðilar sem ekki voru stofnaðir beinlínis til framgöngu þessa máls.  Öll helstu rök í málinu mæla gegn samþykki þess. Staðgöngumæðrun á ekkert skylt við önnur þau  úrræði sem barnlausu fólki standa til boða í okkar frjálslynda samfélagi. Niðurstaða umræðunnar er því miður alveg skýlaus. Staðgöngumæðrun er óásættanleg lausn.

Hvort sem Alþingi samþykkir eitthvað í þessa veru eða ekki er kominn tími til að stofna siðfræðiráð sem fjalli um þau siðferðilegu málefni sem fyrir Alþingi koma. Það er ekki víst að fólk sem kosið er á Alþingi vegna áhuga á atvinnumálum t.d. sé fært um að taka á erfiðum siðferðilegum álitaefnum og er ég þá ekkert að vísa sérstaklega til þesara tilteknu þingkvenna en þessi háttur er hafður á í Danmörku.  (Þar sitja siðfræðingar eins og ég). 

Grein Þorgerðar:http://www.pressan.is/pressupennar/LesaThorgerdi/segjum-ja-vid-stadgongumaedrun

Flokkar: Óflokkað

Miðvikudagur 2.3.2011 - 16:59 - 6 ummæli

Flokkar almannahagsmuna!

Ekki verður annað sagt en að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur  sé að standa sig ákaflega vel.  Með yfirbjóðendur allt um kring er henni að takast að leiða þjóðina uppávið til þeirrar hagsældar sem þjóðin var búin að venja sig á og engin ástæða er til að ætla annað en hér rísi upp réttlátara samfélag en áður var orðið.  Hér er jú að uppistöðu til stjórn jafnaðarmanna studd af fólki sem talar máli þeirra sem minna mega sín.  Samfylkingin og Vinstri Grænir eru, að skilgreiningu, ekki flokkar þeirra sem hreiðrað hafa best um sig heldur flokkar alþýðu.  Þetta eru ekki flokkar sérhagsmuna heldur almannahagsmuna.  Þess vegna mun þessi ríkisstjórn berjast gegn hvers konar misrétti og jafna aðgengi fólks að hvers konar gæðum.

Ríkisstjórnin og þingmeirihluti sá sem stendur að baki henni hefur hins vegar þurft að skera grimmt niður og hefur það bitnað á nánast öllum í samfélaginu.  Allir kveinka sér.  Allir bregðast við eins og hér hafi ekkert hrun orðið.  Sjálfstæðisflokkurinn fordæmir skattahækkanir og niðurskurð.  Systurflokkur hans í Bretlandi, Íhaldsflokkurinn beitir sér fyrir miklu róttækari niðurskurði og miklu meiri skattahækkunum. Að mín viti fer ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur eins skynsamlega í málin og hægt er við erfiðustu aðstæður sem nokkur ríkisstjórn hefur glímt við.

En stuðningsmenn hennar eru ekki nógu brattir. Þeir haga sér eins og lúbarin alþýða allra alda, eru að drepast úr minnimáttarkennd og sjálfsefa, jafnvel sjálfseyðileggingarhvöt.

Flokkar: Óflokkað

Þriðjudagur 1.3.2011 - 10:34 - 1 ummæli

Persónur Njálu í lifanda lífi!

Við fengum boð um að vera viðstödd opnun sýningarinnar með myndum af sögupersónum Njálu í Sögusetrinu á Hvolsvelli.  Þar átti að opinbera fyrir okkur hvernig helstu persónur Njálu hefðu litið út.   Þórhildur Jónsdóttir myndlistarkona, dóttur dóttir Sveinbjörns Högnasonar, væri höfundur myndanna.   Frumkvæðið væri  Bjarna Eiríks Sigurðssonar sem er einhver allra merkilegasti Sunnlendingur allra tíma, skólastjóri, hestamaður, reyndar margháttaður frumkvöðull á því sviði, uppstoppunarbúðareigandi og sjarmör og í seinni tíma sérfróður um Njálu enda býr hann í Fljótshlíðinni.  Hann er eigandi myndanna og meðhöfundur í þeim skilningi að hann lýsti hugmyndum sínum fyrir listakonunni um það hvernig persónur Njálu hefðu litið út í lifanda lífi. Myndirnar eru unnar með hjálp tölvutækni  einherskonar grafísk hönnun.  Með penna eða pensli dregur listamaður upp drætti á flöt og birtist jafnóðum á tölvuskermi þar sem hægt er að vinna áfram með efnið.

Það er kominn alveg nýr maður þarna í Njálusafnið, Sigurður Hróarsson bókmenntafræðingur, eitt sinn leikhússtjóri í Borgarleikhúsinu ef mér skjöplast ekki.  Sigurður virðist falla alveg að landslagi þarna, stingur ekki á nokkurn hátt í stúf við annað sem sem er í þessu merka safni, fróður vel um hina fornu sögu, frásagnargóður og áhugasamur.  Hann leiðbeindi okkur hjónum um sýninguna sem er hin forvitnilegasta.

Það er þannig að mér finnst upphaf Njálu lang skemmtilegast og merkilegast.  Risið er þegar Gunnar Hámundarson  fer dulbúinn vestur í Dali til þess að blekkja þá hálfbræður Höskuld og Hrút og liðsinna þar með Unni Marðardóttur frændkonu sinni.  Þetta er auðvitað skemmtilegasti og merkasti hluti sögunnar því þarna koma Dalamenn við sögu. Enda er það svo  að þeir eru lang myndarlegastir á sýningunni Höskuldur og Hrútur ásamt með Dalakonunni Hallgerði Höskuldsdóttur.  Að vísu er Gunnar firna flottur, en hann var líka aðalhetjan, ljóshærður, fagureygður, sviphreinn og myndarlegur , minnir þannig á írsk ættaða Dalamennina,  en alls ólíkur öllum öðrum Rangæingum þess tíma og til þessa dags.

Ekki var ég alveg ánægður með alla. Mér fannst Njáll líta út eins og venjulegur Sunnlendingur, bræður Gunnars frekar álappalegir svo og Njálssynir nema þá Skarphéðinn. Ég sá tvær myndir af honum. Á Hópmynd þar sem hann er nokkuð líkur sjálfum sér en síður á hinni myndinni þar sem hann er ekki nógu sköruglega flottljótur.  Og þar er ég kominn að kjarna málsins:  Öll höfum við í huga okkar nokkuð fastmótaðar útgáfur af því Njálufólki sem hefur lifað með okkur öll þessi ár og nú er ég að tala um okkur reynsluboltana sem komnir eru af barnsaldri. Þannig eru Njálurnar jafn margar og við sem höfum  tekið ástfóstri við söguna.  Þessi sýning breytir engu um það en gaman er að sjá hvernig aðrir, í þessu tilviki þau Bjarni Eiríkur og listakonan Þórhildur Jónsdóttir hafa séð þetta fyrir sér.

Ef eitthvað er finnst mér konurnar of fríðar til dæmis Þorgerður Þráinsdóttir og Unnur Marðardóttir. Ef eitthvað er að marka nýjustu vísindakenningar um að konur verði ,,fríðari“ með hverri kynslóð ættu núlifandi dömur að vera ennþá fallegri en þær þó eru miðað við fegurð þessara fornaaldarkvenna.  Nema Bergþóra sé formóðirin en hún er höfð forljót og það er ég alls ekki sáttur við.

Ég skoðaði alls yfir þrjátíu myndir og vil hrósa listkonunni fyrir listaverkin og henni og Bjarna Eiríki fyrir tiltækið.  Sumar myndirnar eru þegar farnar að hafa áhrif á hugmynd mína um sögupersónur.  Þeir sem vilja að heimsmynd þeirra verði fyrir áhrifum ættu að bregða sér á sýninguna en þeir sem vilja lifa við óbreytta hugmynd sína um heiminn ættu að halda sig heima.

Njála í máli og myndum. Myndlistarsýning í Gallerí Ormi í Sögusetrinu á Hvolsvelli

Myndverk Þórhildar Jónsdóttur af persónum í Njálssögu

Sýningin er opin fram í miðjan apríl og er opin á opnunartíma  setursins

Ókeypis aðgangur

Baldur Kristjánsson

Flokkar: Óflokkað

Höfundur