Mánudagur 09.12.2013 - 18:17 - FB ummæli ()

Vandinn er ekki Vigdís Hauksdóttir

Ég hef skömm á Vigdísi Hauksdóttur og öllu hennar rugli.

Vandinn er samt ekki hún.

Vandinn er sú ríkisstjórn auðkýfinganna sem komin er til valda og ætlar sér grímulaus að gleypa í sig hverja krónu sem þeir misstu af meðan aðrir fóru stundarkorn með stjórnina til að hreinsa upp skítinn eftir þá sjálfa.

Vandinn er sú ríkisstjórn sem ætlar sér að koma upp samfélagi misskiptingar þar sem lítilþægir þjónar hennar hlýða hverri skipun að ofan og hverju fundarboði á „leyndó-fund“ í von um brauðmola, en alþýðan hefur það hlutverk að vinna og halda kjafti.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Illugi Jökulsson
RSS straumur: RSS straumur

Tímans rás



Hleð...

Eingöngu gamlar fréttir!