Færslur fyrir janúar, 2015

Mánudagur 26.01 2015 - 10:10

Þjóðhetja

Þegar ég var strákur var Friðrik Ólafsson þjóðhetja. Já, ég held það sé óhætt að kalla hann það. Löngum stundum var hann kannski sá maður á Íslandi sem fyllti okkur mestu þjóðarstolti. Já, ég held það sé líka óhætt að taka þannig til orða. Það var ekkert ofmælt hjá Bent Larsen að þegar Friðrik tefldi fylgdist […]

Föstudagur 23.01 2015 - 17:58

Hin hrollvekjandi Hanna Birna

Ég efast ekki eitt augnablik um að sínum nánustu sé Hanna Birna Kristjánsdóttir hin vænsta manneskja. En þó ekki aðstoðarmönnum sínum. Þeim atti hún út í ótrúlegt lygafen, og mun skömm hennar lengi uppi vegna þess. Ég efast heldur ekki um að hún hafi ætlað sér að vinna hin gagnlegustu störf í pólitík. En dómgreindarbresturinn […]

Miðvikudagur 21.01 2015 - 10:51

Fyrirlitleg ákvörðun

Með því að skipa Gústaf Níelsson í mannréttindaráð Reykjavíkur er Framsóknarflokkurinn að hæðast að minnihlutahópum og gefa skít í áhyggjur fólks af vaxandi uppgangi öfgafólks í samfélaginu. Hins vegar er sagt við rasista og hatursmenn samkynhneigðra: „Komið til okkar og við skulum gefa ykkur skjól.“ Þetta er kannski ekki stórmál í sjálfu sér, en þetta […]

Þriðjudagur 20.01 2015 - 11:57

Sjúkt ástand

Það er auðvitað fullkomlega sjúkt að við skulum hafa látið líðast að örfáir tugir manna séu ríkari en allur hinn fátækari helmingur mannkyns. Þetta er sjúkt, óeðlilegt, ósiðlegt, óskynsamlegt og mun enda með ósköpum. Réttlætiskennd býr þrátt fyrir allt í brjósti manna, og svona ástand er ekki réttlátt. Þess vegna verður tekið í taumana fyrr […]

Fimmtudagur 15.01 2015 - 14:50

Hverjum má treysta?

Sumt er fyndið í bók Styrmis Gunnarssonar, Í köldu stríði. Á einum stað segir frá því að eftir för Styrmis til Bandaríkjanna 1967 hafi honum orðið ónotalega við þegar hann uppgötvaði hve andstaðan við Víetnamstríðið var víðtæk meðal almennings þar í landi. Hann fór heim og skrifaði grein í Morgunblaðið þar sem hann greindi frá […]

Miðvikudagur 14.01 2015 - 07:41

Að skíta upp á bak

Ég þoli ekki orðalagið „að skíta upp á bak“. Mér finnst það groddalegt, illa þefjandi, óþarflega myndrænt og yfirleitt of lítillækkandi fyrir þá sem það er notað um – hvað svo sem þeir kunna að hafa gert af sér. Ég held því að ég hafi aldrei notað það. En um ummæli Ásmundar Friðrikssonar alþingismanns er […]

Mánudagur 12.01 2015 - 22:46

Horfumst í augu við það

Alveg burtséð frá allri pólitík, sem við getum haft misjafnar skoðanir á, burtséð frá hinni makráðu hægristefnu Framsóknarflokksins nú um stundir, burtséð meira að segja frá daðrinu við útlendingafjandskapinn, já, burtséð frá þessu öllu, þá er eitt nú orðið sorglega augljóst: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson veldur ekki starfi forsætisráðherra. Hann er stöðugt í tómu klúðri og […]

Mánudagur 12.01 2015 - 08:50

Hvers konar forsætisráðherra er þetta?

Sigmundi Davíð bar auðvitað engin skylda til að fara til Parísar. Ég hefði að vísu haldið að hann hefði viljað fara. Stundin á République-torgi var skipulögð af fólki til að láta í ljós stuðning við grunngildi samfélags – frelsi, jafnrétti, bræðralag. Flestir þjóðarleiðtogar Evrópu og margir utan álfunnar skildu hvað klukkan sló og mættu til […]

Laugardagur 10.01 2015 - 10:32

Gleymum því ekki

Fyrst eftir árásirnar í París virtust allir sammála um að um hefði verið að ræða árás á tjáningarfrelsið. Þarna hefði verið um að ræða forstokkaða öfgamenn sem þyldu ekki gagnrýni og háð um sín lífsviðhorf. Síðan hafa risið upp aðrar raddir, þær segja meðal annars: „Hvaða vitleysa er þetta, að árásin í Frakklandi hafi snúist […]

Fimmtudagur 08.01 2015 - 08:44

Þegar Kolbrún var skotin í kaf

Hrunveturinn mikla 2008-2009 horfðum við Íslendingar fram á eintómt svartnætti. Ljóst var að skuldir þjóðarbúsins yrðu gífurlegar næstu árin og jafnvel áratugina og risastórri stoð hafði verið kippt utan atvinnulífinu – bankastarfseminni – án þess að séð yrði að neitt kæmi í staðinn. Þá reyndu menn talsvert að binda trúss sitt við væntanlega olíuvinnslu á Drekasvæðinu. […]

Höfundur

Illugi Jökulsson
RSS straumur: RSS straumur

Tímans rás



Hleð...

Eingöngu gamlar fréttir!