Laugardagur 25.10.2014 - 19:26 - FB ummæli ()

Nei takk Hanna Birna

Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra mínus, sagði á kirkjuþingi í dag að traust skorti í samfélaginu.

Ástæðan væri sú að „umræðan“ væri svo hörð.

Ástæðan er sem sagt ekki óheiðarlegir og vanhæfir stjórnmálamenn sem valda ekki hlutverki sínu, klúðra allri sinni stjórnsýslu og ljúga jafnvel blákalt að bæði Alþingi og þjóðinni.

Nei, það er UMRÆÐAN sem er svo hættuleg.

Æ Hanna Birna, veistu,  ég held við þurfum bara ekkert á þinni siðaprédikun að halda.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Illugi Jökulsson
RSS straumur: RSS straumur

Tímans rás



Hleð...

Eingöngu gamlar fréttir!