Kastljósið sniðugt. Fyrst Jón Gnarr hikandi og viðurkennnandi vanmátt og svo næst tvær talvélar sem hika aldrei, humma aldrei, vita alltaf hvað þeir ætla að segja, vita allt, verður aldrei svara fátt, typískir íslenskir stjórnmálamenn, orðaflaumurinn takmarkalaus. Ekki skal lítið gert úr þeim miklu vandamálum sem þeir félagar Steingrímur Sigfússon og Árni Sigfússon bæjarstjóri eru að fást […]
Það var lærdómsríkt að horfa á Jón Gnarr í Kasljósinu. Venjulegur maður sem er borgarstjóri og er ekkert að þykjast vera eitthvað annað en hann er. Ekkert málskrúð, ekkert lýðskrum. Rökréttur, hugsandi, vill vel. Það er mikill léttir að gamli Sjálfstæðisflokkurinn skuli ekki ráða Reykjavík með andliti nýja Sjálfstæðisflokkins. Hvernig væri að losna alveg við […]
Vinátta er ,,stofnun“ í okkar samfélagi sem hefur farið svolítið á flakk. Hugtakinu hefur verið stolið af peningavélum eins og facebook og raunar með almennri orðnotkun eins og ,,vinalína“ Rrauða Krossins. Þá eiga hjón eiga að vera ,,vinir“ samkvæmt tískunni og um leið er hjónahugtakið sett á flakk. Svo hefur vináttuhugtakið fengið á sig spillingarstimpil […]
Mesta hættan við hægrisinnaða öfga rasistaflokka í Evrópu er að fulltrúar meginflokka fara að draga dám af málfari þeirra og það smitast líka inn í fjölmiðla. Orð Angelu Merkel um að fjölmenningarsamfélagið hafi misheppnast eru dæmi um slíkt. Hún er fyrst og fremst að höfða til þess hóps sem gæti hrokkið úr flokki hennar hægra […]
Með lýðskrumstillögum sínum og neitun á samráði sá Sjálfstæðisflokkurinn til þess að pendúllinn sveiflast nú með ríkisstjórninni. Það er verðskuldað. Misheppnuð mótmæli í dag staðfesta þetta. Þessi ríkisstjórn er líka að standa sig. Jóhanna má vera ákveðnari. Við þurfum hvort tveggja í senn. Meira lýðræði og ákveðna leiðtoga. Og mannréttindasinnar innan VG þurfa að átta […]
Glöggur vinur minn sem er á leið til Noregs undrast það að ég skuli voga mér að vera hér áfram barnanna minna vegna. Hann fullyrðir að íslendingar eigi eftir að skrapa botninn í nokkrar kynslóðir. Landflóttin sé byrjaður. Menntafólk flýi skerið en ómenntaðir innflytjendur komi í staðinn. Þeir sem hafa það skást munu alltaf setja […]
Ef ég væri við stjórnvölinn myndi ég auka þorskkvótann um 35 þúsund tonn. Ég myndi skapa 22 þúsund störf, auka hagvöxt, lækka skatta, lækka greiðslubyrði fasteignalána um helming, tryggja kvótakerfið í sessi, hefja framkvæmdir í Helguvík, koma af stað orkufrekum iðnaði á Bakka, endurskipuleggja skuldir fyrirtækja, hagræða í grunn- og framhaldskólum, hafa hallalus fjárlög, útrýma […]
Gamla Testamentið er frábært safn bóka -39 rit frá ýmsum tímabilum. Margt misjafnt að finna þar en hreinar perlur inn á milli. Sagan af Jósef og bræðrum hans í 1. Mósebók er þar framarlega í flokki. Snilli um góðæri, kreppu, föðurást, öfund, fyrirgefningu og ábyrgð. Prédikarinn er líka frábært spekirit, Rutarbók, mögnuð ástarsaga, orðskviðir Salómons […]
Þórðar Ingvarsson vekur athygli á grein minni um ECRI sem birtist á Smugunni á síðasta ári. Þar sem hún hefur ekki birst á eyjunni og ég vísa svolítið í þetta fyrirbrigði endurbirti ég greinina hér áhugafólki um mannréttindi til sálubótar. ,,Um miðja síðustu öld, upp úr stríðslokum, verður til margt það sem hefur gagnast okkur […]
Hvað er verið að ráðst að Halldóri Ásgrímssyni? Er hann meiri þrjótur en gerist og gengur? Starfaði hann ekki alltaf innan ramma laganna? Eltu Framsóknarmenn hann ekki um áratugaskeið eins og dáleiddar hænur? Hefði ekki hvaða stjórnmálamaður sem er látið undan LÍÚ og komið kvótakerfinu á? Urðu ekki allir að gjalti nálægt Davíð Oddssyni? Er […]