Ríkisútvarpið segir að ekkert samkomulag hafi enn verið gert um þinglok. Ég ætla rétt að vona ekki. Því ef slíkt samkomulag felur í sér að hætt verði við rannsókn á einkavæðingu bankanna, endurskoðun fiskveiðipólisíunnar verði lokuð inní skáp, þá lýsi ég fullkomnu frati á slíkt samkomulag. Þá tek ég undir hvert orð sem Margrét Tryggvadóttir […]
Eins og ég hef margtekið fram í þessu bloggi, þá á ég frekar erfitt með að skilja flóknar viðskiptafléttur og hvað þá brögð og brellur í bankakerfinu. Ég tók því fyrir löngu þá ákvörðun að fara mjög varlega með orð þegar slíkt og þvíumlíkt berst í tal. Því segi ég aðeins – eftir að hafa […]
Sjálfstæðisflokkurinn er aftur kominn til valda í Kópavogi. Og þar er nú byrjað að „leiðrétta“. Það er vonandi engin þörf á að segja neitt um viðtalið sem DV tekur við Ármann bæjarstjóra. Það er nóg að birta það bara eins og það kemur af skepnunni. Í DV segir: „Að sjálfsögðu höfum við skorið niður allstaðar,“ […]
Ekki eru miklar kröfur gerðar til sumra íslenskra þingmanna. Þeim leyfist að opinbera fávisku sína, fordóma, vanþekkingu og ranghugmyndir, auk þess sem fyllilega er leyfilegt að móðga heilar þjóðir með einhverjum rugluðum heilaspuna. Og það þykir ekki taka því að minnast á það, hvorki í fjölmiðlum né af öðrum þingmönnum þegar boðið er upp á […]
Eftir einhverja massífustu auglýsingaherferð í manna minnum og þrotlausan hræðsluáróður stefna sægreifarnir 70 skipum til Reykjavíkur til að sýna styrk sinn með fjöldafundi á Austurvelli. Rútuferðir í boði úr nágrannabyggðunum – og meira að segja ókeypis bjór að því er virðist. (Hvílík misþyrming á heilögum rétti fólks til að mótmæla! Hvílík ömurleg lágkúra!) En eftir […]
Ég var á Austurvelli í dag að fylgjast með andófi gegn fundi sægreifanna. Þá kom til mín reiður maður og sagði að ég skyldi ekki voga mér að þykjast hafa vit á þessu, ég hefði alltaf „verið á ríkinu“ og aldrei mígið í saltan sjó. Reyndar eru þær fullyrðingar allar rangar, en látum það liggja […]
Ef matvörukaupmenn hæfu nú mikla baráttu gegn vörugjaldi, þá mundi aldrei hvarfla að þeim að beita fyrir sig í baráttunni starfsfólkinu í verslunum þeirra, og hvað þá fjölskyldum þess. En þetta láta sægreifarnir sig hafa, og þetta láta sjómenn yfir sig ganga. Æ lágkúran!
Aldrei þessu vant ætla ég að birta hér í heilu lagi blogg eftir annan mann. Birgi Kristbjörn Hauksson. Hann bloggar hér, en ég ætla að leyfa mér að birta pistilinn hans (hef reyndar ekki beðið um leyfi, vona að það fyrirgefist). Ég bætti inn slatta af greinaskilum til að pistillinn verði auðlæsilegri. Pistillinn hefur fyrirsögnin „Sjómaður […]
Kappræður forsetaframbjóðenda? Jahá. Af hverju eiga forsetar endilega að vera ofsalega góðir í kappræðum?
Alltaf hefur legið ljóst fyrir að aðildarsamningur að ESB verður borinn upp til þjóðaratkvæðis. Það hefur ekki hvarflað að nokkrum manni að gera annað. Þó formlega verði sú atkvæðagreiðsla víst ekki bindandi, þá munu þingmenn að sjálfsögðu greiða atkvæði eins og þjóðin hefur boðið. (Þeir einu sem hafa lýst því yfir að þeir muni ekki […]