Tveir býsna ungir piltar á leið í skólasund voru að spjalla saman í búningsklefanum í Vesturbæjarlauginni í morgun. „Veistu að elsta konan í Frakklandi er 160 ára? Hún er líka dáin.“ „Nei,“ sagði hinn, „ég sá hana í sjónvarpinu og hún var lifandi.“ „Nehei,“ svaraði sá fyrri. „Ég sá hana líka, en þetta var bara […]
Óveðrið Sandy er víst enn að gera óskunda vestur í Bandaríkjunum og Kanada en telst ekki lengur fellibylur, því dregið hefur úr vindhæð. Í íslenskum fjölmiðlum hefur verið nokkuð á reiki hvað á að kalla þetta veður og á Vísi.is í morgun var Sandy kölluð „ofurstormur“. Það er fullkominn óþarfi. Við eigum góð og gild […]
Það skiptir heilmiklu máli hvaða skoðun núverandi forystumenn Sjálfstæðismenn hafa á ýmsum mikilvægum málum nútímans, svo sem gjaldmiðilsmálum, stjórnarskrá og fleiru. Það skiptir líka máli í hvaða átt ungir sjálfstæðismenn ætla í framtíðinni. En ég verð að segja að það er alveg stórlega óintressant hvað þeir þusa, þeir beisku og tapsáru fyrrum forystumenn flokksins sem […]
Fáeinar athugasemdir um þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardag Í fyrsta lagi: Kjörsókn var meiri og stuðningur við tillögur stjórnlagaráðs mun öflugri en flestir virðast hafa gert ráð fyrir. Um það er engum blöðum að fletta. Það er kjánalegt að gera lítið úr kjörsókninni. Miðað við allar forsendur málsins og borið saman við álíka atkvæðagreiðslur hér heima […]
Guðmundur Andri Thorsson skrifar að mínum dómi skynsamlega um þjóðaratkvæðagreiðsluna í Fréttablaðið í morgun. Sjá hér. Ég vek sérstaka athygli á niðurlagsorðunum, og vona að þingmenn sem núna ná tillögurnar til meðferðar taki þau til sín. Ég sat náttúrlega í stjórnlagaráði, en ég held samt að mér sé óhætt að segja að þau séu sönn. […]
Ég heyri sagt að nú ættu stuðningsmenn tillagna stjórnlagaráðs að teygja sig langar leiðir til andstæðinga þeirra tillagna, svo að skapa megi sátt. Ég er að sjálfsögðu alltaf og ævinlega fylgjandi sáttum í hverju máli. En mér finnst samt að orðræða af þessu tagi sé byggð á ákveðnum misskilningi. Sátt um grundvöll að nýrri stjórnarskrá […]
Þetta er hinn besti dagur. En það er samt svolítið sorglegt að sá andstæðinga stjórnlagaráðstillögunnar reyna að halda því fram að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar í gær hafi verið eitthvað annað en stórsigur þeirra sem sögðu „já“ við fyrstu spurningunni. Ef 66 prósent hefðu sagt „nei“, hve líklegt er þá að Bjarni Benediktsson hefði komin dapurlegur á […]
Stuðningur við tillögur stjórnlagaráðs í þjóðaratkvæðagreiðslunni í gær var miklu meiri en ég þorði að vona. Hann var einfaldlega mjög afgerandi, og kosningaþáttakan var bara fín. Prívat og persónulega þakka ég auðmjúklega fyrir að hafa fengið að taka svolítinn þátt í þessu öllu saman, og þakka öllum öðrum sem við sögu komu. Öllum sem áttu […]
Mín góða þjóð. Farið nú á kjörstað og kjósið um nýja stjórnarskrá. Þetta er sannarlega möguleiki sem margar þjóðir myndu öfunda okkar af. Í tillögum stjórnlagaráðs eru vissulega ýmis álitamál sem enn má ræða um stund, en þar er þó ekkert hættulegt á ferðinni. Svo farið og kjósið. Látum ekki taka af okkur réttinn til […]
Ég ætla að brjóta reglur um að bannað sé að vera með áróður á kjörstað. Ég mun samt ekki vera með fána og veifur niðrí Ráðhúsi þegar ég fer sjálfur að kjósa á eftir. Ég meina þennan pistil. Því kjörstaður í þessu tilfelli er fyrst og fremst hugur hvers einasta kjósenda. Þegar hún eða hann […]