Gunnar Helgi Kristinsson var í viðtali í Morgunblaðinu í morgun þar sem hann fann stjórnarskrárfrumvarpinu flest til foráttu. Það er nú það. Hann hefur að sjálfsögðu fullan rétt á sinni skoðun. Og sumar af athugasemdum hans eru alveg markverðar. Það hefði að vísu verið gagnlegra ef hann hefði komið fram með þær ögn fyrr. Mig […]
Það hefur alltaf verið nokkuð þung undiralda gegn Evrópusambandinu í breska Íhaldsflokknum. Burtséð frá ýmsum efnahagspólitískum ástæðum er ástæðan líka gremja yfir því að hið gamla heimsveldi skuli nú þurfa að líta á önnur ríki og „smærri“ sem jafningja, og deila með þeim leifunum af áhrifavaldi sínu. Þessi undiralda hefur þyngst á síðustu árin, nú […]
Ég tek það fram að ég spila aldrei fjárhættuspil og svo ég viti til, þá þekki ég engan sem það gerir. Og ég veit nákvæmlega ekkert um það fólk sem handtekið var í gærkvöldi í Skeifunni og er bersýnilega sakað um að halda úti ólöglegum spilaklúbbi. Þaðan af síður veit ég nokkuð um þá starfsemi […]
Björg Thorarensen lagaprófessor lætur hafa eftir sér á mbl.is að 31. grein stjórnarskrárfrumvarps stjórnlagaráðs sé „lítt ígrunduð“. Nú ber ég vissulega takmarkalitla virðingu fyrir þekkingu og hæfni Bjargar, en þetta er þó rangt hjá henni. 31. grein stjórnlagaráðs er ekki „lítt ígrunduð“. Hún var þvert á móti afar vel ígrunduð, og hlaut heilmikla umræðu […]
Það höfðu lengi verið þykkar rendur á sjónvarpinu mínu, og stundum brutust þar út brakandi truflanir svo myndin lék á reiðiskjálfi. Bersýnilega var löngu tímabært að fá sér nýtt sjónvarp. Ég streittist hins vegar lengi við. Ef ég keypti nýtt sjónvarp, þá þyrfti það óhjákvæmilega að vera af hinni óttalegu gerð flatskjár og voru þeir ekki […]
Þegar herferð Napóleons til Rússlands stóð yfir fyrir réttum 200 árum voru Rússar í mikilli hættu staddir. Maður skyldi ætla að þeirra helstu menn hefðu þá þjappað sér saman og verið samhuga við að leysa verkefnið, en það var nú eitthvað annað. Í forystusveit rússneska hersins var hver höndin upp á móti annarri og helstu […]
Vissulega var furðulegt að sjá tvo þingmenn ganga framhjá myndavélum Alþingis með blöð sem á stóð: „Málþóf.“ Sjá hér. Og ætti ég sæti á Alþingi, þá mundi ég ekki hafa gert þvíumlíkt. Ég verð samt að viðurkenna að ég botna ekki alveg í heitfengustu hneyksluninni út af uppátæki þingmannanna. Ef þeir Lúðvík og Björn Valur […]
Ég get ekki stillt mig um að vísa hér á þennan ógurlega hrekk sem einhver kvikindi í Brasilíu stóðu fyrir. Sjá hérna. Það veit sá sem allt veit að ekki hefði ég viljað verða fyrir þessu!
Það má vafalítið segja margt ljótt um núverandi ríkisstjórn. En hinu má þó alveg halda á lofti að ef hér hefði verið við völd utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins, þá hefði Ísland án nokkurs efa verið í kvöld í örfámennum hópi þjóða sem ekki gat greitt Palestínumönnum atkvæði sitt.
Maður í heita pottinum sagði við annan mann: „Heyrðu, já, og ég þekki einn gamlan útgerðarmann, sem sagði mér sjálfur þessa sögu hér. Hann var búinn að selja allt sitt, enda orðinn roskinn, og fékk í sinn hlut 800 milljónir. Það var í raun fyrir hans ævistarf. Reyndar var það ekki hann sjálfur sem sagði […]