Viðbrögð forsætisráðherra við afsögn Hönnu Birnu er þess eðlis að Spaugstofan eða Baggalútur hefðu verið fullsæmd af. Ekki eitt orð um þau mistök og misfærslur sem Hanna Birna gerði sig seka um. Nei, það er ÞJÓÐIN sem þarf að skammast sín. Á mbl.is segir Sigmundur Davíð að „gengið hafi verið fram af mikilli grimmd og […]
Mál Hönnu Birnu Kristjánsdóttur er auðvitað langt frá því til lykta leitt. Það er leiðinlegt að sjá fall hennar, því hún var að ýmsu leyti dugandi stjórnmálamaður og vildi vel á mörgum sviðum. En einhverjir brestir hafa nú ráðið því sem orðið er. Og þetta er ekki í fyrsta sinn sem þeir birtast. Það var […]
Ég hélt ræðu á Austurvelli í gær. Ekki var ritstjóri Morgunblaðsins ánægður með ræðuna, og allt í lagi með það. Hann sendir mér pillu í Staksteinum í morgun, og allt í lagi með það líka. Ég verð hins vegar að segja að mér finnst ansi skrýtið að hann skuli fullyrða að ég geti „þakkað þessari […]
Þetta er ræða sem ég flutti á Austurvelli laust upp úr klukkan fimm síðdegis nú áðan. – – – Komiði sæl. Ég las það á netinu um daginn að forsætisráðherra Íslands stæði þessa dagana frammi fyrir alvarlegu og mjög erfiðu vandamáli. Og af því ég má aldrei neitt aumt sjá, þá fór ég að […]
Sko. Það er lítil gaman að hamra á manni sem augljóslega stendur höllum fæti, það er að segja Gísla Frey Valdórssyni. Ég verð samt að segja eftirfarandi. Eins og öðrum fannst mér nokkuð til um hina skyndilegu játningu hans frá því í gær. Og eins og aðrir hlaut ég að trúa því sem fram kom […]
Ég fór á mótmælafund á Austurvelli klukkan fimm. Það var kalt og fallegt veður, hátt í þrjú þúsund manns mættu, skemmtilegt fólk sem gerði að gamni sínu af djúpri alvöru, og ágæt úthugsuð ávörp voru flutt af ræðumönnum sem vildu allt til vinna að bæta sitt samfélag. Og það var sungið og þarna uppgötvaði ég […]
Fyrir kosningarnar 2013 var logið að okkur. Framsóknarflokkurinn þóttist ætla að galdra fram ókeypis 300 milljarða frá erlendum hrægammasjóðum. Æ síðan hefur þessi mikla lygi legið yfir samfélaginu eins og holtaþoka. Núna er verið að útbýtta einhverjum milljörðum úr ríkissjóði til útvalins samfélagshóps, og þar á meðal fær stóreignafólk góða summu. Holtaþokan er orðin blaut, […]
Af einskærri hógværð lagði Svavar Knútur talsmaður mótmælanna á Austurvelli áðan hvað eftir annað áherslu á að hann væri fyrst og fremst að biðja um virðingu og kurteisi frá stjórnarherrunum. Þá kemur forsætisráðherra í fréttirnar og segir að fólk hafi komið til mótmæla af því þeirra flokkar séu ekki í ríkisstjórn og svona mótmæli séu orðin […]
Ég er nú ekki vanur að birta á þessum vettvangi langar tilvitnanir úr greinum eða pistlum eftir aðra. En ætla að gera undantekningu í þetta sinn. Lýður Árnason læknir og fyrrum stjórnlagaráðsmaður skrifar grein í Fréttablaðið í morgun um „grátkór Landspítala“ eins og hann segir í fyrirsögn greinarinnr. Og vísar þar til Kastljóssviðtalsins þar sem […]
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra mínus, sagði á kirkjuþingi í dag að traust skorti í samfélaginu. Ástæðan væri sú að „umræðan“ væri svo hörð. Ástæðan er sem sagt ekki óheiðarlegir og vanhæfir stjórnmálamenn sem valda ekki hlutverki sínu, klúðra allri sinni stjórnsýslu og ljúga jafnvel blákalt að bæði Alþingi og þjóðinni. Nei, það er UMRÆÐAN sem […]