Mér skilst að margir eigi svo erfitt með að gera upp hug sinn í Icesave-málinu að þeir skipti um skoðun nánast daglega. Ég geri það reyndar ekki. Ég ætla enn að segja „já“. Ekkert af því sem ég hef heyrt nú síðustu dægur breytir aðalatriði málsins í mínum augum: Að áhættan af því að segja […]
Ég ætla að segja „já“ í þjóðaratkvæðagreiðslunni um samninginn um Icesave. Þetta ætla ég að gera að MJÖG vel athugðu máli, enda höfum við Íslendingar svo sem ekki komist hjá því að hugsa um lítið annað en Icesave síðustu tvö og hálft ár. Ég kann allar röksemdirnar fyrir því að segja „nei“ og ber virðingu […]
Stjórnlagaráð hefur starf sitt í dag. Við sem sitjum í ráðinu munum þá fá í hendur skýrslu stjórnlaganefndar, sem hefur unnið við það undanfarið hálft ár að taka saman allskonar valkosti varðandi stjórnarskrá. Meðal annars og ekki síst byggt á niðurstöðu þjóðfundarins síðastliðið haust. Svo brettum við upp ermar og reynum að komast að niðurstöðu […]
Fyrir örfáum dögum reis hneykslunar- og reiðialda í samfélaginu. Vísa átti ungri stúlku frá Nepal úr landi. Þótt hún vildi alls ekki fara og gæti átt margvíslega nauðung yfir höfði sér í heimalandinu. Mitt framlag var að skrifa pistil hér á Eyjuna, þar sem ég hvatti Ögmund Jónasson innanríkisráðherra eindregið til að beita sér fyrir því […]
Ég er alveg dolfallinn yfir útvarpsauglýsingu Egils Ólafssonar um börnin sem strita munu í hinum bresku námum ef við samþykkjum Icesave-samningana. Auðvitað segir hann það ekki berum orðum – en gefur í skyn að örlög barnanna okkar í framtíðinni verði áþekk hörmulegu hlutskipti þeirra barna sem seld voru úr landi á 15. öld, ef við […]
Ég hef alltaf verið dyggur stuðningsmaður Ögmundar Jónassonar alþingismanns. Ég er reyndar ekki nærri alltaf sammála öllum hans skoðunum, og mér finnst hreint ekki að hann eigi alltaf að fá sitt fram á öllum sviðum. En ég hef ævinlega borið mikla virðingu fyrir honum sem hugsjónamanni, og mér hefur þótt sem sjónarmið hans eigi alltaf […]
Í sambandi við stóra stóra risastóra ríkisborgaréttarmálið, þá er það rétt hjá Róberti Marshall að við þurfum að ræða málið tiltölulega æsingalaust og kurteislega. Ég vona að ég hafi gert það fyrr í dag, þó ég hafi ekki getað stillt mig um að gera svolítið grín að öllu saman. Og það verður að viðurkennast að […]
Nú ætla ég að gera játningu. Ég er svo vitlaus, að einu sinni þegar verst horfði í hruninu, og ekki bara íslenskt efnahagslíf, heldur efnahagur alls heimsins virtist stefna lóðbeint niður til helvítis, þá hugsaði ég einu sinni: „Æ, ég vildi það kæmu geimverur.“ Ég verð að segja mér til afbötunar að þessi hugsun dvaldi […]
Ég hef lagt það í vana minn að fara svolítið varlega þegar nýjar fréttir berast af einhverjum fjármálagjörningum útrásarvíkinganna, sem virðast við fyrstu sýn vera rakin glæpaverk. Það er vissulega stundum freistandi að stökkva á vagninn og hrópa með hinum: Helvítisandskotansdjöfulsinsútrásarvíkingarnirykkarglæpamennogþrjótar! En ég hef reynt að stilla mig um það. Annars vegar er ástæðan einfaldlega […]
Á Vísi.is birtist sú fregn að fálkaorða sé til sölu á netinu. Það fylgir sögunni að þessi fálkaorða hafi verið veitt fyrir 1977. Það er þá til dæmis væntanlega ekki Sigurður Einarsson sem er að selja fálkaorðuna sína. En það vekur athygli mína hvað orðan er ódýr. Hún er til sölu á 170 þúsund. Helsta […]